Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 25

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Page 25
EF SKRIFAÐAR HEFÐU VERIÐ DAGBÆKUR 169 eykt, hverjum kvartélaskiptum, hverri tunglfyllingu. Hann var.öðruvísi á miðum morgni en á miðaftni, öðruvísi, þegar Stjarn- an var í dagmálastað, en þegar hún var komin í nónstað. Og hin mikla stærð hans, litur hans og tilbreytingar í formi, gerðu þessi blæskipti og svipbrigði augsýnilegri og margvíslegri en blæbrigði annarra fjalla. Or- æfajökull var alltaf nýr. Fegurstur var hann frá Breiðabólsstaðabæjunum og frá Hest- gerðiskambi, austan við .miðja Suðursveit. Upp með rótum hans að austan teygðu sig tvö fjöll. Það sýndist ekki vera langt á milli þeirra, og annað var fyrir norðan hitt. Þau sáust aðeins upp fyrir Breiðamerkur- jökul heiman frá Hala. Það var eins og þau væru á milli hans og Oræfajökuls. Mér virt- ist þau vera annarrar ættar en fjöllin í Ör- æfajökli, svipaðri Fellsfjalli á litinn. Þau, voru eins og útlendingai í þessu jöklaum- hverfi. Það var einkennilegt að sjá þau dökk og snjólaus og hlýleg móka upp úr jökulhaf- inu fyrir austan þau og bera við mjallhvítar fannahlíðar Öræfajökuls í vestri. Ég hugsaði oft: Hvernig ætli þessi fjöll séu fyrir neðan það, sem maður sér af þeim? Grænar hlíð- ar og búsældarlegir dalir með tærum lækj- um og heimilislegum lækjarbökkum? Spak- viturt sauðfé á beit, sem ekki þarf að bera inn tað og erfiða í þurrum heyjum og standa holdvott við slátt í rigningu? Álfar í stór- fiskaleik á sléttum völlum í tunglsljósi á kvöldin? Dularfullir þytir í lofti? Ég vissi að Suðursveit átti ekki þessi fjöll. Einu sinni átti Breiðabólsstaður þau, og þá var Breiðabólsstaður Breiðabólsstaður, ná- kvæmar sagt Langibólsstaður. En nú voru þau afréttarlönd einhverra bæja úti í Öræf- um. Það var þetta ósýnilega fyrir neðan jökul- brúnina, sem dró huga minn aftur og aftur til þessara fjarlægu fjalla. Þau áttu sér líka sögu, sem ég heyrði sagða og tók mikið rúm í hugskotsholi mínu. Fyrir mörgum öldum, þegar meira sól- skin var á daginn og veðrin voru hlýrri og landið veizlubúið og dísir svifu í lofti á næt- urnar, þá stóð mikill bær undir nyrðra fjall- inu. Þar hét undir Fjalli, síðar Fjall. Þann bæ gerði norskur maður, sem hét Þórður ill- ugi. Hann minnti mig á föður minn, þegar mikið var undir af þurru heyi og landnyrð- ingur kominn í Hornið. Landið fékk Þórður hjá Hrollaugi landnámsmanni, sem þá átti lönd öll út að Kví, langt fyrri vestan Fjall. I þann tíð var slétta vaxin grasi og skógi utan frá fjöru og norður fyrir Fjall, ekki mjórri en tveggja tíma gangur skemmstu leið frá sjó, máski miklu breiðari. Hún hét Breiðármörk. Þar stóð bær, sem hét Breiðá, efalaust mikil jörð. Sá bær mun sennilega hafa staðið nokkurn veg fyrir austan býli Þórðar illuga. En Breiðamerkurjökull lá fyrir ofan byggð- ina, að líkindum langt að baki henni, því að landnámsmenn munu varla hafa byggt bæi sína að óþörfu uppi undir jöklum, og þá hefur Breiðamerkurjökull verið miklu mjórri frá austri til vesturs en hann varð síðar. En höfðingjar landsins frömdu glæp, sem dró á eftir sér langar hörmungar. Þeir lögð- ust í innanlandsstyrjaldir sakir fégræðgi og valdafíknar og seldu síðan land sitt og þjóð undir yfirráð erlends einvaldskonungs og bundu þar með margar kynslóðir í fjötra fátæktar, hungurs, kúgunar og vesaldóms, og þá tóku veðrin að spillast, sólfar varð minna, úrfelli meiri, kuldar harðari og dísir

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.