Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 42

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 42
186 NÝTT HELGAFELL Þessi forlagatrú á sér engan stuðning í kenningum nútímavísinda. Vísindin hafa sannarlega ekki enn opinberað okkur leynd- ardóma framtíðarinnar, enda þótt þau haíi kennt okkur ærið margt um einstaka þætti þjóðíélagsins og hvernig sjá megi fyrir þró- un þeirra. Þau öfl, sem áhrif hafa á atburða- rás heimsins og á mannlegt samfélag eru svo margþætt og flókin, að enn þá hyllir ekki undir þá tíð, er menn geti sett fram haldgóðar kenningar um þróunina nokkuð fram í tímann. Þótt vísindin haíi að vísu stóraukið þekkingu mannanna, hafa þau um leið átt verulegan þátt í því að gerbylta öllu þjóðfélaginu og valda svo örum breyt- ingum, að engin dæmi eru til áður. Og hinn sívaxandi hraði atburðarásarinnar hefur áreiðanlega vegið upp á móti auknum skilningi á lögmálum þjóðfélagsins^ Enn stöndum við nútímamenn því á þröskuldi framtíðarinnar litlu vísari um atburði næsta dags en forfeður okkar fyrir hundruðum ára. Saga síðustu áratuga hefur margsinnis fært okkur heim sanninn um þetta, svo að ekki verður um villzt. Hvar sáu menn fyrir þrjá- tíu árum þá veilu í menningu vesturlanda, er átti eftir að verða að fári nazismans, svo að eitt dæmi sé nefnt? Með þessum orðum ætla ég sannarlega ekki að gera lítið úr afrekum vísindanna. Hitt verða menn að muna, að þau byggjast á efa, en ekki trú. Þau ættu að gera mann- inn umburðarlyndan, en ekki ofstækisfull- an. Þau eru ekki aðeins bezti leiðbeinandi okkar í leit að þekkingu, þau eiga líka þrá- faldlega að benda okkur á þá mörgu hluti, sem við enn ekki skiljum. En því miður hef- ur vald það, sem vísindin hafa lagt mönn- um í hendur, einatt fyllt þá hroka, án þess að þeir hafi l^ert að meta hina hlið þeirra, sem er varfærni í dómum og meðvitundin um takmarkaða þekkingu mannanna. II. Eftir þennan formála væri ofdirfska að spá nokkru um framtíðarhorfur íslend- inga í þessum róstusama heimi. Hitt er kunn- ara en frá þurfi að segja, að byltingar þess- arar aldar hafa ekki siglt hér hjá garði eins og mörg umbrot í sögu heimsins fyrr á öld- um. A örskömmum tíma og eftir margra alda kyrrstöðu hafa Islendingar steypzt út í hringiðu tuttugustu aldarinnar. Og þeir hafa lært ótrúlega fljótt að tileinka sér trú nútím- ans á efnahagslegar framfarir og blessun þeirra. Af er sú tíð, að Islendingar kveði heimsósóma af botnlausri svartsýni á ver- aldarinnar gang. Nú er um að gera fyrir alla að fylgjast með tímanum, en ákjósanlegast af öllu er þó að vera á undan samtíð sinni. Og mörgum stjórnmálamönnum virðist meira um það hugað að slá sig til riddara með stórkostlegum tillögum um framtíðina en að dvelja við vandamál líðandi stundar. Enginn skyldi lasta framsýni, en það er til lítils að beina sjónaukanum að drauma- landinu í fjarska, ef ekki er gætt að þeim skerjum, sem leynast fyrir stafni. Sé siglt með gát, hafa Islendingar þó óneitanlega ástæðu til bjartsýni. Auðlindir landsins eru miklar fyrir hina litlu þjóð, sem í því býr, og skiptir þá mestu, að menn hafi vilja og atorku til að nýta þær til fulls. Frægur sérfræðingur í hagsögu, prófessor Rostow, hefur bent á nokkur atriði í viðhorfi þjóða, sem hann álítur mikilvæga forsendu efnahagslegra framfara. I fyrsta lagi telur hann áhuga á vísindalegum rannsóknum, í öðru lagi tilhneigingu manna til að beita aðferðum vísindanna við lausn hagnýtra viðfangsefna, í þriðja lagi er eftirsókn eftir nýjungum, í fjórða lagi löngun manna í bætt lífskjör og aukna neyzlu og að lokum tilhneigingin til fólksfjölgunar. I öllum þessum greinum virðast íslending- ar standa forystuþjóðum heimsins á sporði, nema líklega í fræðilegum rannsóknum og í hagnýtingu vísinda í þágu atvinnulífsins, en hvoru tveggja miðar í rétta átt. Hins veg- ar vantar sízt nýjungagimina eða löngun í veraldlega velmegun, svo að sumum mun finnast nóg um. Einnig er enginn vafi á því, að hin öra fólksfjölgun er mikilvæg for- senda efnahagslegra framfara í landinu, en
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.