Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 44

Nýtt Helgafell - 01.12.1956, Qupperneq 44
188 NÝTT HELGAFELL gerum meiri kröfur til neyzlu og fjórfestingar en framleiðslan þolir, hlýtur það að leiða til ófarnaðar. Okkur væri hollt að kynna okkur betur fordæmi þeirra smáþjóða, sem þó eru miklu stærri en við, sem eiga afkomu sína undir útflutningsatvinnuvegunum, svo sem Sviss- lendingar, Danir og Hollendingar. Allar hafa þær lagt kapp á að halda verðlagi sínu í skefjum og stuðla að sem frjálsustum við- skiptum við umheiminn. Með því hafa þær ekki aðeins eflt velmegun sína og framfarir, heldur einnig styrkt aðstöðu sína og athafna- frelsi í samfélagi þjóðanna. IV. Á þeim árum, sem liðin eru síðan ísland varð sjálfstætt ríki, höfum við tekið þátt í margháttaðri samvinnu við erlendar þjóðir. Öll hefur afstaða okkar til þessara mála mótazt af efnahagsástandinu heima fyrir. Um það hefur verið hugsað fyrst og fremst, hvað við gætum haft upp úr samvinnunni, en minna um hitt að styðja þau málefni til sigurs, sem hún hefur byggzt á. Þegar Marshall-hjálpin var við líði, þáðum við þar ríkulega hjálp, enda þótt við hefðum komið efnaðri út úr styrjöldinni en flestar aðrar þjóðir Evrópu. Hins vegar höfum við lítið sem ekkert lagt á okkur til að koma stefnumálum Efnahagssamvinnustofnunar Evrópu fram til sigurs, en hún var helzti ávöxtur Marshall- áætlunarinnar. Þannig er það í flestum greinum, við erum reiðubúnir til að vera með, ef við höfum eitthvað áþreifanlegt upp úr því, en við veigrum okkur ætíð við því að taka á okkur nokkrar af þeim skyldum, sem á móti eiga að koma. Þessi afstaða hefur ekki aðeins verið hnekkir fyrir virðingu okk- ar bæði út á við og gagnvart sjálfum okkur, heldur hefur hún orðið til þess, að við erum í rauninni orðnir utngarðs í allri efnahags- samvinnu vestrænna þjóða, sem máli skiptir. I stað þess að auka frelsi í gjaldeyrisvið- skiptum í samvinnu við aðrar þjóðir Evrópu hafa viðskipti okkar meira og meira færzt yfir á vöruskipti undanfarin ár. Nú eru um- ræður að hefjast um það í Evrópu, hvort ekki sé hægt að koma á víðtæku tollabanda- lagi. Engin þjóð mundi hafa meiri ávinn- ing af slíkri samvinnu en Islendingar, en að óbreyttri stefnu í efnahagsmálum eru eng- in líkindi til, að þeir geti orðið þátttakendur. Þannig er nú komið málum okkar; í stað þess að standa í fremstu röð þeirra, sem vinna að því að treysta viðskiptabönd hinna frjálsu þjóða, erum við orðnir óvirkir og áhugalausir um þau efni. Eftir eitt mesta veltutímabil í sögu okkar virðast menn ekki eygja annað úrræði en að sjá okkur far- borða með taumlausum erlendum lántökum, vel vitandi, að það er hernaðarlegt mikil- vægi landsins en ekki lánstraust okkar sjálfra, sem þar er sterkasta trompið á hendi. Nú er verið að taka eða nýbúið að taka örlagaríkar ákvarðanir um áframhaldandi dvöl varnarliðsins hér á landi. Vonandi verður það gert án tillits til efnahagslegra röksemda með eða móti. Hér verður annað sjónarmið, styrjaldarhættan og ógn kommún- ismans, að ráða úrslitum. Hitt ætti engum Islendingi að dyljast, að á meðan efnahags- leg málefni þeirra eru í því ástandi, að þeir þurfi sífellt að leita á náðir annarra, verða þeir aldrei algerlega frjálsir gerða sinna. Hér á það sama við og um einstaklinginn, efnahagslegt sjálfstæði eykur sjálfstraust hans og frjálslyndi. Þess vegna hafa hinir fjölmörgu smáatvinnurekendur og einyrkjar, svo sem bændur, iðnaðarmenn, útvegsmenn og kaupsýslumenn, þráfaldlega verið for- vígismenn lýðræðis og mannréttinda, þótt fleiri hafi lagt hönd að því verki. V. Að lokum skal ég viðurkenna, að ég sé alls ekki, hvert þjóðarskútunni er nú stefnt eða hvaða örlög bíða okkar jafnvel á næstu mánuðum. Hitt er von mín, að Islendingar læri að meta mikilvægi trausts efnahags og heilbrigðra utanríkisviðskipta fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og setji sér það markmið að vinna ötullega með fordæmi sínu og stefnu að eflingu alþjóðasamvinnu bæði í efnahags-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.