Nýtt Helgafell - 01.07.1957, Blaðsíða 9
FORSPJALL
55
þarf ekki á vísindamönnum að
halda — lét múgurinn sér vel líka.
Vér, sem nú lifum, höfum fengið
að reyna, hve þunn er sú skel sið-
menningar, sem skilur jafnvel hinar
menntuðustu þjóðir frá fullkomninni
villimennsku. Þau verðmæti, sem
vér metum mest, kunna því að verða
fótum troðin, áður en varir, ef slak-
að er á þeim kröfum um frjálsa stjórn-
arhætti og virðingu fyrir lögum,
þekkingu og mannréttindum, sem
vestrænt lýðræði hvílir á.
Hannes Pétursson:
Garður blárra augna
Fróðlegt en grátt væri að gista
garð þinna bláu augna,
ormagarð þinna augna,
ægilegan að sögn;
þeim sem þig hafa kyssta
er þar búinn staður að deyja
tærast upp, týnast í þögn.
Ef yrði mér vægðarlaust varpað
í válegan garð þinna augna,
hvort dyggði mín dálitla harpa?