Alþýðuhelgin - 24.12.1949, Síða 34

Alþýðuhelgin - 24.12.1949, Síða 34
32 JÖLAHELGIN Grikkinn, sem má meisfari spænskrar myndiisfar. 1. Meðan naturalisminn ríkti óskor- að í myndlist Evrópu, var vegur spænska málarans E1 Greco ekki til- takanlega mikill. Verk hans voru í engum sérstökum hávegum höíð. Þau stóðust illa þann mælikvarða, sem naturálisminn lagði á myndlist. Því varð að vísu eklti neitað, að í myndum þessa kynleg'a manns var einhver villtur kraftur. En var það ekki kraftur hins geðveika, hins óða? Þannig spurðu sumir natural- istar, og sú skoðun var um skeið nokkuð útbreidd, að hinar máttugu myndir E1 Grccos, sem brutu öll lögmál „véruleikastefnunnar“, bæru einkum vott um truflað sálarástand. Aðrir vildu fara nokkru vægar í sakirnar og skýra „galla“ myndanna á þann veg, að listamaðurinn hafi haft slæma sjón, ekki kunnað að reikna út rétt hlutföll eða skort alla nákvæmni til þess að gefa myndum sínum samræmi og jafn- vægi. Lislamcnn og. gagnrýnendur síð- ustu áratuga hafa dæmt E1 Greco út frá allt öðrum forsendum, enda cr dpmur þeirra flestra á þá leið, að þessi gríski Spánverji sé einhver stórbro na ti snillingur, sem uppi hari vevið, hinar bcztu myndir hans séu gæddar þeim' kynngikrafti, að þar verði naumast bent á nokkra idiðstæðu í gjörvallri málaralist heimsins. Ilefur sennilega enginn af snillingum fyrri alda haft meiri áhrif á þróun málaralistar síðasta mannsaldur cn þessi dularfulli furðumaður í Tolcdo. Verður í eftir- farandi línum sagt nokkuð frá ævi hans og list og birtar eftir hann fáeinar myndir, scm njóta sín þó að sjálfsögðu hvergi nærri nógu vel, þar eð ekki cru tök á að birta þær í litum. 2. Nafn lians var Domenico Theoto- copuli, en Spánvei’jar kölluðu hann E1 Greco, Grikkjann, og því nafni er hann jafnan nefndur. Ilann er fæddur á eynni Krít, en þar hafa fundizt einna merkilegastar forn- leifar í byggingarlist, höggmynda- Málarinn E! Greco. ist og skrautkeragerð, er bera þcss órækt vitni, að þar hefur listmenn- ing verið á mjög háu stigi til forna. Krít hefur stundum vcrið nefnd „eyja leyndardómanna“, og E1 Greco var að því leyti í samræmi við ættbygð sína, að cigi hvílir méiri leyndardómur yfir nokkrum heimsfrægum málara síðari alda. Um ævi hans er flest á huldu. Fæð- ingarár er eigi vitað, en talið, að liann sé fæddur á tímabilinu 1540—1550. í æsku mun hann hafa dvalizt alllengi á Ítalíu, en' fram um 1570 er nálega ekkert um hann vit- að. Það ár er hann nefndur i bréfi E1 Greco: María mey. nokkru. Ber bréfið með sér, að hann er þá í Róm. Segir höfundur bréfs- ins, að „þessi ungi Kríteyingur hafi m. a. málað sjálfsmynd, sem vakið hafi athygli og aðdáun listunnenda í Rómaborg11. Nú komst E1 Greco í kynni við hinn mikla, ítalska snilling, Titian, og gerðist lærisveinn hans. Þótt Titian væri þá kominn yfir nírætt, mátti heita að hann væri enn í fullu fjöri, og mun honum hafa verið ljóst, hvílíkar * snilligáfur bjuggu með hinum unga Kríteyingi. E1 Greco málaði nú nokkrar myndir undir handleiðslu Titians, lærði ým- islegt af meistaranum, en fór þó snemma eigin götur, enda var hann engum manni líkur í list sinni. Leið og eigi á löngu, unz hann komst svo langt út af alfaraleið, að hann tæki að hneyksla frómar sálir. Árið 1576, sama ár og Titian andaðist, skýtur E1 Greco upp í borginni Tol- edo á Spáni. List hans vakti þar þegar í stað mikla athygli, og um hana liófust ákafar deilur. í bréfi, sem maður nokkur í Toledo ritar þetta ár, getur hann komu þcssa umtalaða málara til borgarinnar. Kveður hann það almæli þeirra, sem vit hafa á listum, að Grikkinn „sýni í list sinni slíkar öfgar og rangfæri veruleikann á svo herfilegan hátt, að önnur eins ósköp hafi aldrei sést í málaralist áður“. Bréfkafli þessi gefur til kynna, hvernig ýmsir hafa litið á þennan nýja og óvenjulega listamann. En heimildir greina einnig frá hinu, að E1 Greco hreif marga unga málara með list sinni og myndaði þegar spænskan mál- araskóla. Nokkrir hinna eldri list- dómara dáðust einnig að myndum lians, eins og eftii’farandi saga vott- ar: Skömmu eftir að E1 Greco sett- ist að í Toledo, var hann beðinn að mála altaristöfiu í dómkirkju borg- arinnar. Þegar verkinu var lokið, reis ágreiningur um greiðsluna til listamannsins. Ráðamenn dómkirkj- unnar voru óánægðir og vildu ekki greiða nema lítilræði fyrir verkið. E1 Greco fékk þá umsögn nokkurra listamanna borgarinnar um mál-

x

Alþýðuhelgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.