Félagsbréf - 01.01.1957, Page 6
^Jdíacjic) Jridiá
jaló mennincf
HINN 23. marz s.l. var stofnað hér
félagið Frjáls menning. Megin-
markmið þess er að vinna að vernd-
un og eflingu frjálsrar hugsunar og
frjálsrar menningarstarfsemi. Það er
óháð öllum stjórnmálaflokkum, en
skuldbindur meðlimi sína til jákvæðr-
ar baráttu gegn hvers konar einræðis-
hyggju, ríkisofbeldi og skoðanakúgun,
eins og segir í stefnuyfirlýsingu þess.
Einginn frjálshuga maður gengur að
því gruflandi, að þetta félag hefur
mikilvægt verk að vinna, og sýnir það
enn, á hvílíkum viðsjálstímum vér lif-
vera fyrir félag til verndar mannrétt-
um. Það er óglæsilegt, að þörf skuli
indum, svo sjálfsögðum, að oss finnst,
sem frjáls hugsun og frjáls andleg
starfsemi er. Segja má, að þau mann-
réttindi hafi verið óaðskiljanleg oss
Islendingum frá öndverðu; jafnvel á
einveldisöld, þegar flest annað var
frá oss tekið, fengum vér að halda
þeim nokkurn veginn óskertum. Því
hörmulegra er það, að nú skuli vera
hér að verki öfl, er vinna óbeint að
því, að vér séum sviptir þessum rétt-
indum.
Annars er óþarft að fjölyrða um
ógnanir þær, sem hrundið hafa af
stað stofnun þessa félags og hlið-
stæðra menningarsamtaka í lýðfrjáls-
um löndum. Þær ógnanir, sem þar eru
að verki, gráar fyrir járnum, hafa
þegar á valdi sínu dágóðan hluta
licimsins og áhugasama erindreka í
flestum löndum liins hlutans. Tug-
miljónir sakleysingja hafa fallið fyrir
vopnum þeirra og á höggstokkum
þeirra, miklu fleiri miljónir þrælkað-
ar í fangabúðum þeirra, og allir þeir,
sem þessi ógnaröfl hafa náð valdi
yfir, eru sviptir sjálfsögðustu mann-
réttindum.
Þeirri spurningu hlýtur strax að
skjóta upp, hvernig félag sem Frjáls
menning hugsi sér að starfa og hvaða
aðferðum það hyggist beita. 1 stefnu-
yfirlýsingunni segir, að félagið eigi
„hliðstöðu með þeim menningarsam-
tökum, er nefnast á frönsku Congrés
pour la Liberté de la Culture og
starfa víðsvegar í lýðræðislöndum, en
er óbundið þeim að öðru en sameigin-
legri hollustu við frjálsa hugsun og
frjálsa menningu“.
*
ALÞJÓÐASAMTÖK FRJÁLSR-
AR MENNINGAR
Þeir sem staðið hafa að stofnun
félagsins Frjálsrar menningar, ætlast
til þess, að stefna félagsins sé að ein-
hverju leyti mótuð af starfi og reynslu