Félagsbréf - 01.01.1957, Blaðsíða 54
52
FÉLAGSBRÉF
en eigi að síður sýna þær allar snilli hans í því að rnóta persónur og
byggja UPP sögu-
Skemmtisögur Greenes eru lítið eitt þekktar hér á landi, og kvik-
myndir gerðar eftir handritum hans hafa verið sýndar liér. Ein hét
ÞriSji mdSurinn (The Third Man) og varð mjög fræg kvikmynd.
Nákvæmur skilningur, næmt auga og markviss stíll eru einkenni
Grahams Greenes. Hann er talinn lýsa manna bezt lífi nútíma Eng-
lendinga, svo að oft er sagt þar í landi um persónur eða staði, að
þetta sé „nákvæmlega eins og hjá Graham Greene“. Sumir tala um
næstum lilægilega tilhneigingu hans til að taka til meðferðar efni
eins og snyrtiliús, meltingartruflanir og sjaldgæfari hvatir kynferðislífs-
ins, og finnst það skyggja mjög á ágæti margra bóka hans. Sjálfsagt
er of mikið úr þessu gert, en óneitanlega kemur þetta fyrir lijá lxon-
um og fer þá í taugarnar á sumum lesendum, eins og gengur. En
um lireinskilni hans, gáfur og fjölhæfni geta allir verið á einu máli,
og er þess óskandi, að á næstu árum verði íslenzkum lesendum gef-
inn kostur á að kynnast verkum hans nánar en verið hefur.
E. H. F.