Félagsbréf - 01.01.1957, Blaðsíða 65
aa i ar
EINS og að líkum lætur er val
útgáfubóka, sem ætlaðar eru 6
þúsund kaupendum — og væntanlega
um helmingi fleiri lesendum — ærið
vandasamt verk. Hefur reyndin líka
orðið sú, að engin bók hefur til þessa
verið gefin út, án þess að ráða-
menn félagsins hafi verið ávítaðir
allharkalega fyrir valið. í bréfum
til félagsins getur að líta lýsingar
sem þessar:
„Smásögur W. Faulkner, eru að
allra dómi leiðinlegasta bók, sem
hefur verið gefin út hér á landi í ár.
Félagið virðist leggja áherzlu á
að gefa út leiðinlegar félagsbækur,
en góðar aukabækur".
„.... Eftir að hafa lesið hinar
fyrstu bækur félagsins verð ég að
segja að menn hafa orðið fyrir al-
varlegum vonbrigðum með þær. Ég
hef verið að grennslast eftir áliti
þeirra, sem hafa fengið bækurnar
hjá mér, á þeim, og hefur öllum
horið saman um að þeim fyndist ekk-
ert í þær varið, nokkrir kölluðu þær
ólesandi rusl ....“
Slíkir sleggjudómar eru eigi óal-
gengir á landi hér, en hins ber að
geta, að ýmsir hafa lagt á sig erfiði
bréfritunar til að tjá félaginu þakkir
fyrir bókaval. Sérhver bók er bæði
lofuð og löstuð. Er næsta einkenn-
andi, að því meira last, sem berst
um eina bók, þeim mun meira hóls
má vænta um þá hina sömu frá
öðrum.
Af þeim bréfum, sem til þessa
hafa borizt, verða ekki ráðin nein
meginsjónarmið hins mikla lesenda-
hóps, og sjálfsagt verður sú gáta
ætíð torráðin. Og þó að bókmennta-
ráð biðji lesendurna að senda at-
hugasemdir sínar, og óski ádeilna
eigi síður en hóls, þá er það ekki
vegna þess, að ráð sé fyrir því ger-
andi, að slíkri fullkomnun verði náð
við bókavalið, að allir verði ætíð
ánægðir. Er raunar alls ekki að slíku
marki keppt, enda væri starf félags-
ins allt fyrir gýg unnið, er því væri
náð.
Almenna bókafélagið var öðrum
þræði stofnað til varðveizlu einstakl-
ingseinkenna og sjónarmiða og tir
andstöðu við múgs-, valdboðs-, sam-
einingarsjónarmið, kommúnisma, sós-
íalisma eða hvað þessar kræsingar
kunna að vera kallaðar. Þar af leið-
ir auðvitað, að félagið treystir því og
trúir, að sjónarmiðin fái æ að vera
og verði æ margbreytilegri, einnig
að því er verk þess varðar.
En hvað um það. Menn biðja þessa
stundina um skáldsögur, skemmti-
legar og spennandi skáldsögur. Og: