Félagsbréf - 01.01.1957, Blaðsíða 8
6
FÉLAGSBRÉF
New York til Bombay, Vestur-Berlín
til Santíagó og Mexícó City. Vér meg-
um ekki vanmeta mikilvægi slíks:
kynni frjálsra manna á svo fjarlæg-
um stöðum. Og þegar þeir, þrátt fyrir
fjarlægð, sameinast um eina ósk um
réttlæti, þá sýnir það, að frelsið hef-
ur hafið nýja sókn“.
*
STÖRF ALÞJÓÐASAM-
TAIÍANNA
Störf samtakanna eru svo fjölþætt,
að eigi er kostur að rekja þau hér að
ráði. Jafnframt því að kynna almenn-
ingi og leitast við að opna augu hans
fyrir þeim ógnunum, er að frjálsri
menningu seðja, hafa þau lagt
áherzlu á að styrkja lýðræðið hið
innra með því að vekja samvizku
frjálsra þjóða gagnvart menningu
sinni og vinna ósleitilega gegn öfgum,
sem skjóta upp kollinum meðal þeirra,
svo sem McCarthyisma, nýlendukúgun
o. fl. og hafa eigi önnur áhrif en
veikja lýðræðisríkin innbyrðis.
Það er hátttír samtakanna að leggja
málin fyrir ráðstefnur færustu sér-
fræðinga víðsvegar að úr heiminum,
en síðan beita félögin áhrifum sinum
í þá átt að bera fram til sigurs niður-
stöður slíkra ráðstefna. Hafa á þess-
um ráðstefnum verið rædd margvís-
leg mál, allt frá hagfræði, vísindum
og ríkisofbeldi í Ráðstjórnarríkjunum,
til vandamála ungra málara og hljóm-
Iistarmanna. Þá hafa samtökin geng-
izt fyrir sýningum á nútímalist og
séð um hljómleikahald. Ráðstefnur með
menntamönnum frá Asíulöndum hafa
og reynzt afar mikilvægar til aukins
skilnings milli menntamanna í lýð-
ræðisríkjum Asíu og á Vesturlöndum.
Hafa nokkrar þessara ráðstefna verið
haldnar í Asíu, en hliðstæð félög
Frjálsri menningu eru starfandi bæði
í Indlandi og Japan, og stendur ein
slík ráðstefna í Asíu fyrir dyrum, er
þessar línur eru ritaðar.
Félögin ráða yfir eða eiga aðgang
að fjölda vandaðra tímarita, svo sem
Preuves í Frakklandi, Encounter í
Englandi, Forum í Austurríki, Der
Monat í Þýzkalandi, svo að eitthvað
sé nefnt. Einnig hafa þau haft með
höndum allvíðtæka bókaútgáfu.
1 vetur hafa félagasamtökin verið
mjög mikilvirk í Ugverjalandsmálun-
um, bæði að því er snertir að kynna
hinum frjálsa heimi, hvað raunveru-
lega gerðist og er að gerast í Ung-
verjalandi, og auk þess hafa þau starf-
að mjög að aðstoð við ungversku þjóð-
ina og ungverska flóttamenn. Hefur
Frjáls menning í Danmörku verið
mikilvirk í því starfi undir forystu
síns ágæta formanns, Erik Husfeldt
prófessors.
Meðan stóð á blóðbaðinu í Ung-
verjalandi, gengust félagasamtökin
fyrir mótmælum til rússnesku stjórn-
arinnar, og voru þau undirrituð af
rúmlega 1000 prófessorum frá 108 há-
skólum í 23 löndum.
*
VERKEFNI FRJÁLSRAR
MENNINGAR Á ISLANDI
En hvaða verkefni bíða Frjálsrar
menningar hér á landi? Því verður ekki
svarað hér, slíkt er í verkahring fé-
lagsmanna og félagsstjórnar. En því
sterkara sem félagið er, þeim mun