Félagsbréf - 01.01.1957, Síða 7

Félagsbréf - 01.01.1957, Síða 7
FÉLAGSBRÉF 5 hinna erlendu félagasamtaka. Þau hafa starfað síðan 1950, en stofnun þeirra var ákveðin á ráðstefnu hald- inni í Berlín í júní það ár, þar sem mættir voru 118 kunnir rithöfundar, listamenn, heimspekingar og vísinda- menn frá 21 ríki. Auk þess mættu þar sem gestir nokkrir menntamenn austan yfir járntjald og lögðu sig með því í mikla hættu. Eftir víðtækar rök- ræður um vandamálin ákváðu fundar- menn að vinna framvegis saman fyrir verndun frjálsrar hugsunar og frjálsr- ar menningar gegn þeim öflum, leynd- um og ljósum, er ógnuðu þessum mannréttindum. Smágrein, sem forseti Frjálsrar menningar í París, franski rithöfund- urinn Denis de Rougemont, skrifaði á fimm ára afmæli félagasamtakanna, veitir ókunnugum nokkra innsýn í eðli og tilgang félaganna. Þar segir m. a.: „Allt frá því einræðisstefnur nútím- ans fóru að láta að sér kveða, hafa margir andans menn í Vesturlöndum og Asíu aðhyllzt þá skoðun, að gagns- laust sé að berjast gegn pólitiskum öfgum, nema með því að vera öfga- fullur sjálfur, — tilgangslaust að reyna að kveða niður kommúnisma með öðru en fasistískum aðferðum, óhugsandi að berjast með árangri gegn fasisma án þess að skipa sér í raðir kommúnista. Slík áhætta vofir auðvitað alltaf yfir, og það er ein- ungis áhætta. Eigi að síður trúa margir á sannleiksgildi þessarar skoð- unar, og kjósa að draga sig í lilé af ótta við þær geigvænlegu hættur, sem af öfgunum stafa. Starfsemi Congrés pour la Liberté de la Culture síðustu fimm árin hef- ur sýnt, að það er kleift að berjast gegn ofbeldisstefnunum sem frjáls maður. Og hún hefur líka sýnt, að hægt er að sigrast á þeim tauga- veiklaða uppgjafaranda, sem einkenn- ir svo menntamenn vorra tíma. Vér berjumst ekki gegn ríkisofbeld- inu á „sameinuðum vígstöðvum“, þar sem einstaklingunum sé fyrirskipað, hvers konar réttlætistilfinningu þeir eigi að hafa hverju sinni. Félagasam- tök vor eru þvert á móti brennipunkt- ur mjög mismunandi sjónarmiða. — Spyrja mætti, hvað væri sameiginlegt með heiðursforsetum vorum, Maritain og Russel, Niebuhr og de Madariaga, Jaspers og Croce. Sennilega ekkert, fljótt á Iitið. Ekkert vígorð, heldur, eins og John Dewey, hinn mikli eldri samherji þeirra hefði sagt, sérstök reynsla, hin vakandi og stríðandi þjón- usta við mannlegt frelsi innan tak- marka nútíma aðstæðna“. Þá ræðir de Rougemont um starf félagasamtakanna og segir siðan: „Ég vil þó einkum leggja áherzlu á eina staðreynd: þá, að tilvera félaga vorra hefur ef til vill stuðlað í ríkara mæli en flestum er Ijóst að því að breyta andrúmsloftinu meðal andans manna í Evrópu eftir stríðið. Ekki er langt síðan undirgefni menntamanna undir almætti óhagganlegrar söguþróunar var ein af dagskipununum, einkum í Evrópu. Frjálsum mönnum fannst þeir einmana og einangraðir. 1 samtökum vorum öðluðust þeir félagsskap, þar sem þeir gátu starfað í fullu trausti án þess að þurfa að draga fjöður yfir skoðanir sínar og sjónarmið. Hér er ekki um að ræða sértrúarflokk né tor- trygginn stjórnmálaflokk, heldur, ef svo má að orði kveða, net virkrar vináttu, sem nær frá París til Tókíó,

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.