Félagsbréf - 01.01.1957, Page 21
FÉLAGSBRÉF
19
ykkur það í einlægni, að þegar mér var skrifað til Hafnar um
þetta fyrirhugaða kynningarkvöld í Þjóðleikhúsinu, þá svaraði
eg aftur, að þeir góðu menn skyldu ekki láta sér detta sú fjar-
stæða í hug að taka svo stórt húsnæði, því að þeir fengju ekki í
það hálft. Þess vegna finnst mér ekki sízt ástæða til þess að
þakka öllum þeim, sem hafa komið hér í kvöld. Eg get ekki
launað þetta allt saman með neinu öðru en því að reyna að
verða að minnsta kosti ekki verri maður eftir en áður. Að eg
verði betri, er víst því miður allt of mikil ofætlun á mínum aldri.
Þegar eg hugsa um ýmislegt, sem hér hefur verið sagt í kvöld
og borizt mér í dag og svo framvegis, þá verð eg víst að trúa
því, að eg hafi upphaflega fengið talsvert pund að ávaxta. Hitt
veit eg betur en nokkur annar, að þetta pund hefur allt orðið
að lóðum og kvintum, eða hvað það nú heitir, í mínum höndum.
Eg hef dreift kröftum mínum svo, að allt of lítið hefur komið
í hvern stað. Þess vegna er það, að þegar eg á afmæli, — og
eg á ekki sérstaklega við daginn í dag, sem eg hef haft svo
lítið ráðrúm til þess að vera með sjálfum mér, heldur venju-
lega afmælisdaga, — þá reyni eg að hugsa helzt ekki um annað
en það, sem dagurinn er til minningar um: þegar eg fæddist,
— að eg kom inn í þennan heim sem lítill rauður böggull, nakinn,
hrínandi og ósjálfbjarga, og átti ekki nema tvennt dýrmætt
til í fari mínu, augu, sem voru gleraugnalaus, og andlit, sem
var grímulaust. Ef það hefur orðið svo, að eg hafi gert allt of
lítið af hverju einu, sem eg hef tekið mér fyrir hendur, er það
fyrst og fremst vegna þess, að mig hefur langað til annars meira
en nokkurs af því, nefnilega til þess að vera manneskja, og
mér liggur við að segja til þess að vera alltaf barn. Mér finnst
börn, þangað til umhverfið er farið að sljóVga þau og sníða til,
vera það dásamlegasta, sem til er. Og eg ætla að vona eða vildi
óska, þegar eg kem til Sankti Péturs, hvernig sem því reiðir
nú annars af, innan um aðra gamla karla, og hann segir þetta
við einn og þetta við hinn um það, hvernig þeir séu útleiknir
eftir heiminn, — þá segi hann eitthvað á þessa leið við mig:
„Jæja, skepnan mín, þú hefur ekki þurft að ganga í barndóm,
því að þú hefur aldrei komizt úr honum“.