Félagsbréf - 01.01.1957, Page 27
FÉLAGSBRÉF
25
— Það er stundum Letra að skrifa.
— Á ég að bíða eftir svari.
— Hún ræður því; segðu samt þú lialdir þú liafir átt að fá svar..
— Af hverju á ég ekki að vera ákveðinn.
— Sko; gerðu'eins og ég bið þig og segðu aldrei neinum frá því.
— Þú mátt treysta mér.
Hann skrifaði bréfið á hné sér og bleytti blýið með tungunni öðru
hverju. Hann var lengi að skrifa og leit oft til drengsins sem horfði
stöðugt á hann við skriftirnar án þess að hugsa nokkuð sérstakt.
Jónas þurfti að bíða töluvert eftir réttum orðum, en liann spurði
drenginn ekki neins af því liann var ennþá mjög ungur. Hann lagði
blöðin frá sér á rúmið livert eftir annað unz hann liafði skrifað
fjögur. Að því búnu náði liann í umslag, skrifaði utan á það, stakk
bréfinu í það, sleikti límræmuna vandlega og lét stóra linefa sína
pressa lokið niður. Drengurinn fylgdist stöðugt með því sem hann
gerði. Jónas fékk lionum bréfið og hann stakk því inn á sig.
— Týndu því nú ekki, sagði Jónas.
— Ég skal lialda um það í vasanum.
— Og láttu engan sjá þegar þú færð henni það.
— Á ég að kalla á liana afsíðis.
— Ætli hún verði ekki í kamersinu sínu.
— En ef hún verður ekki í kamersinu.
— Þá skaltu gefa lienni í skyn þú viljir tala við hana einslega-
Það var stutt á milli bæjanna og enn var ekkert sólskin en snjór-
inn var bjartur og kaldur og brakaði í honum undir fótum lians.
Hundurinn var ekki með lionum eins og venjulega af því hann hafði
farið með foreldrum hans. Hann hélt um bréfið í vasa sínum á leið-
inni og það varð fljótt heitt og þvalt undan lófa hans. Hann var
heimagangur á Ytra Hóli og vissi það mundi ekki vekja sérstaka
atliygli þótt hann kæmi þangað sem snöggvast. Það var nokkuð lengi
verið að koma til dyra og hann vonaði Sólborg fyndi ekki þvala
af bréfinu. Hann tók það upp úr vasa sínum til að kæla það, en
stakk því aftur inn á sig þegar liann heyrði fótatak í göngunum..
Það hringlaði í lokunni og húsfreyjan kom í dyrnar.
— Sæl vertu ólöf, sagði liann.
— Sæll vertu Dengsi.
— Mér datt í liug að koma af því mamma og pabbi eru ekki heima-
— Fóru þau að jarðarförinni.
— Já.