Félagsbréf - 01.01.1957, Page 35

Félagsbréf - 01.01.1957, Page 35
SIGURÐUR A. MAGNÚSSDN: Stiklað á stóru í bandarískum bókmenntum HAFI síð'ari helmingur 19. aldar fyrst og fremst verið öld Rússa og Frakka í bókmenntasögunni, þá iná með nokkrum sanni segja, að fyrri helmingur 20. aldar hafi verið öld Bandaríkjanna. Þegar skyggnzt er yfir hina stuttu sögu bandarískra bókmcnnta, verður fyrir augum meiri og betri and- legur gróður en margir þeir Evrópu- menn ætla, sem bezt þekkja til tækni og verklegrar menningar Bandaríkjanna. Hins vegar er kannski ekki sanngjamt að bera þau saman við einstakar þjóðir í Evrópu, þar sem þau eru í rauninni heil heimsálfa, í mörgu tilliti jafnsund- urleit og Evrópa. Fyrir nálega hálfri öld var oft talað um Bandaríkin sem „bókmenntalega Sahara-eyðimörk". Þá „flúðu“ sum heztu skáld þeirra til Evrópu og „lögðust út“. Frægastir og atkvæðamestir „útlaganna" voru Henry James, .Ezra Pound og T. s. Eliot. Nú er hins vegar svo komið, að mörg góðskáld Evrópu hafa setzt að vestan hafs. Bandaríkin eru orðin Gósenland skálda og listamanna. * SÍÐASTA ÖLD Eyðimerkur-líkingin var ekki að öllu leyti réttmæt. Bandarikin ólu nokkur stórskáld á siðustu öld, en þau áttu erf- itt uppdráttar og nutu hvergi nærri sömu virðingar eða hlunninda og stallbræð- ur þeirra aust- an hafs. Meðal bandarískra stór- skálda síðustu aldar ber Her- man Melville (1819-’91) einna hæst. Hann hlaut ekki viðurkenn- ingu fyrr en tæpri hálfri öld eftir fráfall sitt, en er nú yfirlýst- ur eitt mesta skáld Bandaríkjanna fyrr og síðar. Snilldarverkin „Moby Dick“, „Pierre“ og „Billy Budd“ eru orðin sígild, en brautryðjandaverk hans í Ijóðagerð hefur tæplega enn lilotið verðuga viðurkenn- ingu. IValt Whitman (1819—’92) var ann- ar af snillingum síðustu aldar, stórbrotið og mjög frumlegt ljóðskáld, sem olli straumhvörfum og vann sér ódauðlegt nafn með ljóðasafni sinu „Leaves of Grass“, er kom út í fjölmörgum aukn- um og endurbættuin útgáfum. Hann hefur haft víðtæk áhrif á Ijóðagerð þessarar aldar bæði í Evrópu og Ame- ríku.

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.