Félagsbréf - 01.01.1957, Qupperneq 45
FÉLAGSBRÉF
43
um, glíman við guðdóminn og rök til-
verunnar vorn viðfangsefni hans. En
honuin tókst
samt aldrei að
gefa verkum sín-
um þá tragísku
reisn, sem hann
stefndi að. Hann
var mikill sál-
fræðingur og
(njall leikhús-
maður, en vald
hans á tungunni
var takmarkað.
„Mourning Be-
comeB Electra"
er kannski nicoi því að vera klassískur
liarmleikur — þar vantar aðeins herzlu-
inuninn. Verk hans eru misjöfn að gæð-
um, en þau eru í heild glæsilegur minn-
isvarði um órólegan anda, sem stefndi
hærra en hann náði. Ekkert eitt þeirra
getur talizt til hinna stóru verka leik-
hókmenntanna.
Maxwell Anderson hefur skrifað nokk-
ur ljóðræn sögu-
leg leikrit og
gert margar at-
hyglisverðar til-
raunir í leikrit-
un, en hefur
ekki uppfyllt
þær vonir, sem
fyrstu verk hans
gáfu. Clifford
Odets og Elmer
Rice hafa skrif-
að ágæta sjón-
leiki um þjóðfé-
lagsinál. Hinn fyrri er ójafn nokkuð,
hinn síðari mikill tæknilegur kunnáttu-
Waður. En hvorugur þeirra hefur valdið
straumhvörfum. Thornton Wilder stend-
ur að likindum næst O’Neill sem leik-
skáld.
Eftir síðari heimsstyrjöld komu hins
vegar fram tveir leikritahöfundar, sem
skapað hafa straumhvörf. Þeir eru um
flest algerar andstæður, en hafa báðir
skrifað verk, sem allar líkur henda til,
að verði sígild.
Arthur Miller hefur skapað eitt af
stórverkum aldarinnar með „The Death
of a Salesman“. Því svipar til grískra
harmleika við
fyrstu sýn, en
við nánari athug-
un verður ljóst,
að „hetja“ leiks-
ins, Biff, eldri
sonurinn, er
ekki í ætt við
hetjur grísku
harmleikanna.
Tvö önnur verk
Millers eru síðri.
„All My Sons“
var skrifað á
undan meistaraverkinu og fjallar um
svipað efni. „The Crucible“ er vel sam-
ið, en alltof „hávært“. Ádeilan og vand-
lætingin eru of augljósar. Miller er
áhrifamikill höfundur með ríka þjóðfé-
lagskennd, en honum hættir til að láta
gremjuna hlaupa með sig í gönur. f síð-
asta verki sínu, „A View From the
Bridge", sem er tveir einþáttungar, tekur
hann upp ný yrkisefni. Þar er annar
tónn, mildari og áhrifaríkari.
''Tennessee Williams er af allt öðru
sauðahúsi. Hjá honuin er það innri
heimur einstaklingsins, sem skiptir öllu
máli. Hann er frá Suðurríkjunum og
hefur þessa „ófélagslegu“ afstöðu margra
skáldbræðra sinna þaðan. í verkum sín-
um dregur hann upp átakanlegar myndir
Maxuiell Anderson.