Félagsbréf - 01.01.1957, Side 49
FÉLAGSBRÉF
47
vef, hinum fölsku rökum og hinni
grunnfæru heimspeki. Og nakinn
sannleikurinn, svo lengi svívirtur,
var öllum heimi ljós.
Valdhafarnir, fullir mannfyrirlitn-
ingar, sem ekki einu sinni skildu, að
þeir voru að svívirða verkalýðinn
höfðu fullvissað okkur um, að fólkið
mundi una sér vel án frelsis, ef það
aðeins fengi brauð. Og allt í einu
svaraði það sjálft, að það hefði ekki
einu sinni brauð, en þó svo væri,
væri það ekki nóg. Því að það var
enginn hálærður prófessor, heldur
jámsmiður í Búdapest, sem skrif-
aði: „Eg vil, að litið sé á mig sem
fullorðinn mann, er vill hugsa og
getur það. Eg vil geta látið hugs-
anir mínar í ljós án ótta, og ég vil
einnig, að hlustað sé á mig“.
Með sífelldum áróðri var reynt að
sannfæra menntamennina um það,
að enginn sannleikur væri til annar
en sá að þjóna málefninu. Þeir
svöruðu með eftirfarandi eiði, sem
þeir unnu á gröf félaga sinna, sem
drepnir vom í þágu þessa málefnis:
„Aldrei framar, jafnvel ekki undir
pyntingum og ógnumun, né vegna
misskilinnar hollustu við málefnið,
munum við segja neitt nema sann-
leikann". (Tibor Merai á gröf
Rajks).
Aftölcupallurinn er ekki leið
til frelsis.
Hér eftir er málið ljóst. Þessi
hrjáða þjóð tilheyrir okkur. Ung-
verjaland er í dag það sama fyrir
okkur og Spánn var fyrir 20 árum.
látils háttar blæbrigði, orðalagsbrell-
ur eða lærðar röksemdafærslur, sem
reynt er að afbaka með sannleikan-
um, skiptir okkur engu. Togstreita
milli Rakosis og Kadars hefur ekkert
að segja. Báðir eru þeir af sama
sauðahúsi. Og þó að ferill Rakosis
sé e. t. v. enn blóði drifnari, þá
verður það ekki lengi.
Það skiptir litlu, hvort manndráp-
arinn eða ofsækjandinn heldur um
stjórnartauminn. Ungverjar munu
skoða þá báða sem jafnmikla fjand-
menn frelsisins.
Því miður verð ég að vera svart-
sýnn spámaður í þessu sambandi og
valda sumum af áhugasömustu vinum
mínum vonbrigðum, en það eru eng-
ir möguleikar fyrir neins konar þró-
un í alræðisríki. Eina „þróunin",
sem ógnarstjórn veldur, er í áttina
til einhvers verra. Höggstokkurinn
býður ekki upp á neitt frjálslyndi,
og gálginn ekkert umburðarlyndi.
Hvergi í heiminum hefur komið
fram maður eða flokkur með al-
ræðisvald í höndiun, að hann hafi
ekki notað það út í æsar.
Það, sem einkennir alræðisríkið,
hvort sem það er til hægri eða
vinstri, er fyrst og fremst, að þar er
aðeins einn flokkur, og sá eini flokk-
ur hefur enga ástæðu til að fremja
sjálfsmorð. Það er þess vegna, að
hið eina þjóðfélag, þar sem þrifizt
getur frjálslyndi, og þróun orðið, er
það þjóðfélag, sem byggt er á fleiri
en einum flokki, og aðeins slíkt
þjóðfélag á að njóta stuðnings okk-
ar beint og óbeint. Aðeins það getur
tryggt, að fordæmdir séu glæpir og
óréttlæti og refsað fyrir slíkt. Að-
eins það gefur möguleika á, að for-
dæmdar séu pyntingar, þessi sví-
virðilega aðferð, jafnfyrirlitleg í Al-
sír og Búdapest.