Félagsbréf - 01.01.1957, Qupperneq 55
Erskine Caldwell er í hópi
kunnwstu rithöfunda í
Bandaríkjunum á síðari ár-
um, fæddur 1903 og því
litlu yngri en Hemingway
og Faulkner. Þýddar hafa
verid eftir liann skáldsög-
urnar
DAGSLÁTTA DROTTINS,
HETJUR Á HELJAR-
SLÓÐ
og nokkrar smásögur.
Þessi kafli er úr sjálfs-
ævisögu hans,
CALL IT EXPERIENCE.
ERSKINE CALDWELL:
óuor
i.
EGAR maður, sem hyggst leggja
stund á ritstörf, leitar til rit-
höfundar um hjálp og ráðléggingar,
má búast við ýmiss konar spurning-
um. Tvær eru þær spumingar, sem
oftast hafa verið lagðar fyrir mig,
bæði munnlega og skriflega: Hvemíg
farið þér að því að skrifa sÖgu Og
hvemig tekst yður að koma henni
á prent?
Eftir öll þessi ár get ég enn ekki
gefið nein viðhlítandi svör við þess-
um spurningum. Flestir munu því
áreiðanlega halda, að ég lúri á ein-
hverju leyndarmáli, því að fáir eru
ánægðir með svör mín. SvÖr þau, sem
ég venjulega gef, eru, að reynsla
mín sé, að bezta leiðin til að læra að
skrifa sé að skrifa og bezta leiðin
til að koma sögu á prent sé að senda
hana tímaritum, unz maður rekst á
einhvem, sem er fús til að gefa
hana út.
Húsmæður í Texas, bílstórar í
Ohio, skólafólk í Nebraska og skrif-
stofumenn í Californiu, sem fengið
hafa slík svör hjá mér, geta með
réttu kvartað yfir því, að ég hafi
ekki gefið nægilega ljós svör við þess-
um spurningum. Ástæðan fyrir því,
að ég á ógreitt með að gefa skil-
merkilegri leiðbeiningar, er e. t. v.