Félagsbréf - 01.01.1957, Page 57

Félagsbréf - 01.01.1957, Page 57
FÉLAGSBRÉF 55 skáldsögu þannig, að hún sé upp- diktuð saga, sem eitthvað tjáir, og nógu skemmtileg til að halda athygli lesandans og ristir nógu djúpt til að hafa varanleg áhrif á hann. Sum- ir hafa sjálfsagt meðfædda frásagn- argáfu, en ég held því fram, að meiri hluti skáldsagnahöfunda ávinni sér annaðhvort með iðni og ástundun eða góðri leiðsögn, hæfileika til að skrifa svo vel gerða sögu, að fleiri en höf- undurinn sjálfur hafi gaman af henni. Og ef nógu margir hafa gam- an af henni, þá má vel gera ráð fyrir, að a. m. k. einn þeirra sé bókaútgefandi. Sennilega munu allir höfundar hafa einhverja meðfædda hæfileika, jafnvel þó að ekki sé nema gáfa til að gera mun á orðum, en það er vafasamt, hvort nokkur, sem kom- ið hefur smásögu eða skáldsögu á prent, hafi náð þeim hæfileika án lengri eða skemmri þjálfunar. Slík skólaganga í skáldsagnagerð ásamt frásagnarhæfileikum kallar fram alla hæfileika mannsins á þessu sviði. Óþolinmæði, ónóg skólun eða leti við að sitja við ritvélina dag eftir dag og ár eftir ár geta auð- veldlega vegið á móti hinum beztu hæfileikum eða hinni sterkustu ástríðu. Ef svo ber við, kann svo að fara, að löngunin til að skrifa hald- ist, en getan verður lítil og ekkert kemst í verk. Af því kann að leiða, að líf mannsins verður kyrkingslegt og gleðisnautt. Skáldsögur eru skrifaðar og munu verða skrifaðar. Margir hinna nýju rithöfunda munu verða fólk á öllum aldri, sem uppgötvar, að einn af leyndardómum skáldsagnagerðar er að læra af æfingu, hvemig túlka skuli hugsanir sínar og tilfinningar, fólk, sem þjálfar sig, unz það skrif- ar svo góðar sögur, að menn vilja lesa þær og gefa þær út. II. Allir rithöfundar fá bæði sníkju- bréf og bréf frá aðdáendum, meira eða minna af hvorum. Sjálfur hef ég fengið 9 vingjamleg bréf á móti hverju einu skammabréfi. Síðan 1929, þegar fyrsta skáldsaga mín kom út, hef ég fengið 10 slík bréf á viku að meðaltali. Á 20 árum urðu þetta um 10 000 bréf, og innihald þeirra hefur verið allt frá taumlausu lofi til algerrar fordæmingar. Ég hef ekki haft tíma og stundum ekki löng- un til að svara svo miklu sem helm- ingnum af þeim. Ég á alveg víst, að um þriðjungur af bréfum þessum em beiðnir um peninga eða um rithand- arsýnishom, eða menn leita ráða um einkamál sín og störf. Eftirfarandi spumingar eru dæmi um þær algengustu og venjulega svipað orðaðar. Margar þeirra eru líka algengar hjá skólafólki og blaða- mönnum og öðrum, sem segjast hafa áhuga á einkalífi og starfsháttum rithöfundar. Spuming: Vinir mínir segja mér, að líf mitt hafi verið mjög merkilegt, og ég er einnig þeirrar skoðunar. Ég hef aldr- ei séð neitt líkt því, hvorki í kvik- mynd né bók. Viljið þér skrifa ævi- sögu mína, ef ég læt yður í té ölj gögn?

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.