Félagsbréf - 01.01.1957, Síða 59
FÉLAGSBRÉF
57
fólk. Hvers vegna skrifið þér ekki
um hina skemmtilegri hlið lífsins?
Svar:
Þeir, sem njóta hinnar skemmti-
legri hliðar á lífinu, eru færri en
þeir, sem verða að þola hið mót-
dræga. Þegar þær þjóðfélagskring-
umstæður eru ekki lengur fyrir
hendi, þá álít ég, að ekki verði nein
ástæða til að skrifa um áhrif fátækt-
ar á sálarlíf mannsins.
Spuming:
Enginn nema maður með sálarlíf
svipað og þér myndi skrifa bók eins
og Dagsláttu Drottins. Eruð þér
brjálaður?
Svar:
Að mínum dómi er ég það ekki.
Mér virðist háttalag mitt eðlilegt.
Spuming:
Ég hef sent smásögur mínar til
allra helztu tímarita, en ég hef enn
enga þeirra fengið prentaða. Ég er
eiginlega að missa kjarkinn. Hvað
ætti ég að gera?
Svar:
Það er alltaf rúm fyrir einn góð-
an rithöfund uppí á tindinum með-
al hinna beztu. En til þess að kom-
ast þangað er bezt að leggjá af stað
af jafnsléttu. Ef þér kærið yður ekki
um að byrja þar, þá er ósenriilegt,
að þér kærið yður um að gera rit-
störf að lífsstarfi yðar. Hins vegar
er gefin út mergð tímarita af alls
konar tagi, og það virðist mjög
sennilegt, að sá, serri gæddur er nægi-
legri einbeitni og þoíiiimæði og ein-
hverjum rithöfundarhæfileikum, geti
fengið birta sögu hjá einhverju
þeirra. Ef aðal áhugamál yðar er
að fá verk yðar birt, þá mun það
ekki skipta yður miklu hvar það er.
Ef lesendunum geðjast að þeim, þá
mun verða nóg af útgefendum, sem
vilja hjálpa yður áleiðis upp á við.
Spuming:
Get ég lært í skóla að skrifa skáld-
sögur?
Svar:
Það er ómögulegt að segja um fyrr
en þér reynið það. Enginn heiðar-
legur kennari mundi gefa yður lof-
orð um að gera yður að rithöfundi,
en kennsla hjálpar mönnum til að'
hjálpa sér sjálfir.
Spuming:
Mig langar til að verða smásagna-
höfundur. Er það til hjálpar eða
tjóns í því sambandi að vinna sem
fréttaritari ?
Svar:
Ég hef aldrei vitað, að neins konar
ritmennska gerði manni tjón. Auk
þess, sem þér fáið þar stöðuga æf-
ingu, skapar það yður þann vana,
að skrifa eitthvað á hverjum degi.
Maður heyrir fyrrverandi blaðamenn
sjaldan nota þá afsökun, að þeir séu
að bíða eftir innblæstri.
Spuming:
Mig hefur alltaf langað til að
skrifa, en ég er fjölskyldumaður og
get ekki sagt upp vinnu minni og
hætt á það að lifa af verkum mínum..
Hvað ætti ég að gera? 1 ’