Félagsbréf - 01.01.1957, Side 62

Félagsbréf - 01.01.1957, Side 62
CJL CLi: Hagfræði framtíðarinnar k síðustu tíu árum hafa í flest- um löndum orðið örar efna- hagslegar framfarir. Það eru mik- il umskipti frá árunum 1930—40, tímabili kreppu og atvinnuleysis, sem stjórnarvöld þeirra tíma verða að hera ábyrgð á. Langvarandi erfiðleikar þessara ára urðu að vissu marki til þess, að nokkrir menn í ýmsum löndum fóru að gera ráð fyrir, að tímabili efna- hagslegra framfara í heiminum væri lokið, og kyrrstaða yrði ríkj- andi í framtíðinni. Þó að ávallt sé allmikið um fátækt og atvinnuleysi, er nú svo komið,\ að í flestum löndum eru efnahagslegar framfarir taldar sjálfsagðar. Hinn almenni borg- ari liefur í raun og veru rétt til að vænta þess, að þeim, sem ráða yfir efnahagsmálum þjóðar hans, muni takast að halda framförun- um áfram með þeim auðæfum og tækni, sem þeir hafa yfir að ráða, og hann hefur fulla lieimild til þess að gagnrýna þá, ef þeim ekki tekzt það. Þó eru takmörk fyrir því, live framleiðsluafköstin geta aukizt. Ef framleiðsluafköstin eru miðuð við vörumagn og vinnu á hverja vinnustund, sést t. d., að þau hafa aukizt jafnt og þétt í Bandaríkj- unum um 2%% á ári. Svipað er að segja um flest önnur iðnaðar- lönd. Það er sjaldgæft, að aukn- ingin nemi 3%, og um hærri tölu er ekki að ræða nema við sér- stakar aðstæður. 1 Sovét-Rúss- -------1-------------------- COLLIN CLARK --------------—-----------------— er ástralskur hagfræðingur fæddur 1905. Hann hefur verið kennari við ýmsa há- skóla í Ástralíu og hagfræðilegur ráðunautur brezku ríkisstjórnarinnar. 1953 varð hann forstjóri The Institute for Research in Agricuhural Econóniics. Ilann hefur samið nokkrar bækur um hagfræði og tölfræði, starfar Við EncóUnter og er með- liniur Frjálsrar menningar í Englandi.

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.