Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 27

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 27
SVANDÍS SKÚLADÓTTIR, fulltrúi í menntamálaráðuneytinu: DAGVISTARHEIMILI I einu dagblaðanna birtist á dögunum viðtal við tvær konur um láglaunaráðstefnu þá, sem haldin var snemma á seinasta ári. I viðtalinu segir orðrétt: „Það kom fram á ráðstefnunni, að um 60% af konum eru úti á vinnumarkaðinum. Margar þeirra eru með börn, þótt ekki se'u það allar, og til þess að þœr geti orðið virkari ! alvinnulífinu, sem verðbólgan rekur þœr raunar út í, þá verður ríkisvaldið að gera stórátak í dagvistunarmálum og öðru, sem gerir þetta fært. Því í öllu þessu tali um jafnrétti megum við ekki gleyma uþþeldi barnanna “. Lúter sagði, að konan lærði aldrei að hlýða. Á meðan ýmsir reiknimeistarar hafa verið að reikna út, hvað mundi nú borga sig að greiða konunni fyrir að vera heima, þá hafa þeir ekki náð út í hálft reikningsdæmið, þegar konan er þegar komin út á vinnumarkaðinn, hvað sem hver segir. Þessari þróun verður ekki snúið aftur, hvort sem sumum líkar bet- ur eða ver. Óþarfi er að ræða þessa þróun, hún blasir hvar- vetna við augum okkar. Ég vil þó verja nokkrum orðum á einn þátt hennar, þátt, sem lýsir í senn, hve smár hlutur kvenna hefur verið á sumum sviðum og miklar breytingar hafa orðið, þótt enn vanti töluvert á, að fullt jafnræði hafi náðst milli kynjanna. Hér hef ég í huga, hvernig aðsókn kvenna í háskólanám hef- ur aukizt. Enda þótt þátttaka kvenna í mennta- skólum hafi verið orðin mjög almenn þegar fyrir siðustu heimsstyrjöld og farið vaxandi alla tíð síðan, þannig að þar'er nú ekki verulegt misræmi milli kynjanna, þá hafa hlutfallslega mjög fáár konur lokið námi frá Háskóla íslands ailt fram á þennan áratug. Mynd 1 lýsir þessari þ'róun síðasta aldar- fjórðung. Myndin sýnir fjölda karla og kvenna, sem útskrifazt hafa á hverjum fimm árum frá árinu 1950. Efri þrepalínan sýnir fjölda karla, neðri þrepalínan sýnir fjölda kvenna. Eg vil taka fram, að þetta sýnir einungis þá, sem ljúka lokaprófi, en þar hef ég þó talið með þá, sem lokið hafa fyrrihlutaprófi í verk- fræði, en framhald þess náms fór fram erlendis. Öllu lærdómsríkara er að líta á hlutfallið milli karla og kvenna, en mynd 2 sýnir, hve margir karlar hafa 800 1951-1955 1956-1960 1961-1965 1966-1970 1971-1975 Mynd 1: Fjöldi karla og kvenna sem hafa útskrifazt frá H.í. á hverjum 5 árum. SVEITARSTJÓRNAAMAL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.