Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 31

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 31
um efnum og á mjög skipulegan hátt. Fyrir nokkrum árum tók þar til starfa barnaheimilanefnd, sem hef- ur unnið mikið og gott verk. Nefndin tók til ræki- legrar endurskoðunar allt starf barnaheimilanna, og á grundvelli þessa starfs voru lagðar fram tillögur um allmiklar breytingar á skipulagi og starfi barna- heimilanna. Jafnframt voru teiknuð barnaheimili í samræmi við hin breyttu viðhorf. I beinu framhaldi af þessu starfi var tekið að reyna hinar nýju hug- myndir. Starfi og skipulagi allmargra eldri heimila var breytt og ný heimili voru byggð eftir teikn- ingum, sem unnar voru á vegum barnaheimila- nefndarinnar. Meginbreytingin í skipulagi heimil- anna felst í því, að deildaskiptingu eftir aldri var breytt þannig, að nú var börnunum aðeins skipt í tvo hópa eftir aldri, þar sem börn frá 6 mánaða til 3ja ára eru saman og síðan börn frá 3ja ára til 6 ára saman. Danir hafa á sama tima unnið með aldursblöndun á barnaheimilum í tilraunaskyni, þannig að þar eru börn allt frá 6 mánaða til 10 ára aldurs saman á deild. Tilgangurinn með þessari aldursblöndun er að skapa meiri fjölbreytni í leikjum og starfi barn- anna. Þessar miklu breytingar krefjast að sjálfsögðu margvíslegra breytinga á skipulagi og starfi heimil- anna og gerir einnig breyttar kröfur til húsnæðisins. Hönnunarnefnd dagvistarheimila Samkvæmt lögunum um dagvistarheimili frá 1973 skyldi menntamálaráðuneytið láta gera teikn- ingar að dagvistarheimilum, eins og ég hef þegar getið um. Ráðuneytið fól Guðmundi Kr. Guð- mundssyni, arkitekt, þetta verkefni með bréfi dags. 15. ágúst 1974, en jafnframt hafði verið ákveðið að skipa fimm manna nefnd til að vinna með arki- tektinum að þessu verkefni, og var fjórum aðilum falið að tilnefna fulltrúa í nefndina, en mennta- málaráðherra skipaði formann hennar án tilnefn- ingar. Nefndin var síðan skipuð í desember 1974. I nefndinni eiga sæti: Svandís Skúladóttir, sem skipuð var formaður nefndarinnar, Ragnheiður Blöndal, tilnefnd af Fóstrufélagi íslands, Sigríður Thorlacius, tilnefnd af Kvenfélagasam- bandi Islands, Sveinn Ragnarsson, tilnefndur af Félagsmálast. Reykjavíkurborgar, Þórunn Einarsdóttir, tilnefnd af Barnavina- félaginu Sumargjöf. Þessi nefnd hefur unnið með arkitektinum að gerð þeirra teikninga, sem hann og samstarfsmaður hans, Ólafur Sigurðsson, arkitekt, kynna hér á ráðstefn- unni. Þegar nefndin hóf starf sitt í ársbyrjun 1975, var tekið tillit til ákvæða laga og reglugerða og þess starfs, sem unnið er á barnaheimilum hér á landi. Auk þess var nefndin sammála um að taka tillit til þróunar, sem er að verða annars staðar á Norður- löndunum um þessar mundir. Reynt er að halda opnum möguleikum fyrir fleiru en einu rekstrar- formi. Nefndin taldi þannig hvorki rétt né æskilegt að ákveða eitt rekstrarform og hanna heimilin í samræmi við það. Uppdrættir að dagvistarheimilum Eg vil nú rekja í stuttu máli helztu forsendur hinna nýju teikninga: Mynd 5: Dagheimill og leikskólar, byggt 1931 — 1972. SVEITARSTJÖRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.