Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Page 42

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Page 42
5) eldhús, matargeymslur 6) skrifstofa 7) einangrun, herbergi læknis og sálfræðings 8) geymsla með hverri deildarstofu 9) aðalgeymsla 10) fatageymsla starfsliðs með aðliggjandi snyrt- ingu 11) herbergi starfsfólks 12) leiksvæði með geymslu fyrir útileikföng 13) þvottahús, ræstiklefi A Idursblönduð deild: Svipaðar kröfur skal gera og fyrir 2 — 6 ára deildir, sem þegar hefur verið lýst. Sérstakar kröfur þarf þó að gera til snyrtiherbergjanna, sem notuð eru þá bæði af ungbörnum og eldri börnum. Er þá meiri þörf fyrir fleiri minni herbergi í tengslum við deildir. Séu í þessum deildum börn á fyrsta aldursári, þarf að vera innrétting í eldhúsi til að geyma pela barnanna. Hvíldarherbergi þarf að vera fyrir yngri börnin. B. Leikskólar: Skipulag og starf leikskólanna er í megindráttum svipað og dagheimilanna, nema hvað þeir eru fyrir börn á aldrinum 2 — 6 ára, og börnin eru þar ein- ungis hálfan daginn. Um þessi heimili gildir því flest hið sama og fyrir 2 — 6 ára deildir dagheimilanna nema hvað fullkomið eldhús, matargeymslur og Góð leiktæki eru gulii betri við sérhvert dagheimili. Karlmennirnir virtust laðast að þessu leiktæki, sem er flugvélarlíkan og er á leiksvæði við Múlaborg. Talið frá vinstri: bæjarstjórarnir Pétur Már Jónsson á Ólafsfirði og Haukur Harðarson á Húsavík, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Bragi Benediktsson, Hafnarfirði, Sveinn Guðbjartsson, Hafnarfirði og Ólafur Sigurðsson, arkitekt. þvottahús þarf ekki. Börnin sofa ekki á leikskóla, og þarf því ekki sérstakt hvíldarherbergi. C. Skóladagheimili: Starfsemi skóladagheimilanna er með líku sniði og á dagheimilum. Börnum er auk þess búin aðsta$a til heimanáms og veitt hjálp við námið, ef ástæða er til. Þau sækja skólann frá skóladagheimilinu og dveljast þar til jafnaðar 5 — 6 stundir á dag. Skipulag er margt svipað og hjá eldri deildum dagheimilanna, en gæta þarf þess, að leikir barnanna og starf tekur þá miklum breytingum. I meginatriðum gildir svipað um herbergi og leiksvæði og talið er upp í kaflanum um dagheimili nema hvað lesstofur bætast við. Ennfremur þarf að taka tillit til breyttra viðhorfa í einstökum atriðum, eins og rætt er um hér að neðan. D. Leiksvceði: Leiksvæði skal ekki vera undir 20 m2 á hvert barn, gjarnan mun stœrra. Leiksvæðið skal liggja beint að dagvistarheimilinu. Á leiksvæðinu skal vera aðstaða til fjölbreytilegra leikja og starfa, og þeir möguleikar til fjölbreytni, sem svæðið býður frá náttúrunnar hendi (hólar, steinar o. fl.) skulu notaðir vel. Á leikvelli skal vera lítið afmarkað svæði fyrir byggingaleiki (starfsvöllur). Geymsla fyrir úti- leikföng þarf að vera í tengslum við útileiksvæðið. 36 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.