Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 51

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Side 51
þ. b. 35 — 45% af rekstri dagheimila, en u. þ. b. 50% af rekstri leikskóla. I Noregi er hlutur foreldra öllu lægri eða um 30% af reksturskostnaði. Haukur Harðarson hefur rætt hér á undan nokkuð um vistgjöldin, og ætla ég mér því ekki að fara frekar út í þá sálma. Þó vil ég lýsa því yfir, að ég tel óeðlilegt, að launamisréttið í landinu sé að einhverju leyti minnkað með daggjöldum. Það á að jafna með launagreiðslum og skattkerfi. Dag- gjöld, sem greidd væru í hlutfalli við efnahag, gætu leitt til þess, að það foreldrið, er minni möguleika hefði til að afla sér tekna, ynni ekki úti og þannig orðið til að hindra börn í að njóta dagvistunar í hópi jafnaldra. 22. STYRKIR. Ríkissjóður greiddi 33 milljónir króna vegna rekstrar dagvistunarstofnana árið 1973, eðau. þ. b. 11% af rekstrarkostnaði leikskóla það ár. Árið 1974 hækkaði þetta framlag upp í rúm 25% fyrir dagheimili og u. þ. b. 17% fyrir leikskóla. Enn hefur ekkert verið greitt vegna rekstursins 1975 og rekstursstyrkur fyrir það ár verður ekki auðsóttur í ríkiskassann, nema til komi veruleg hugarfarsbreyt- ing hjá háttvirtri ríkisstjórn. 1 svartasta skammdeginu á síðastliðnu ári voru svo hin margumræddu lög um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga samþykkt á Alþingi. Eins og ykkur er kunnugt, fá nú sveitarfélögin hluta af söluskatti til reksturs dagvistunarstofnana. Við breytinguna var tilfærslan vegna dagvistarstofnana metin á 130 milljónir króna, og lætur nærri, að sveitarfélögin fái þá um 600 kr. á íbúa til þessa reksturs. Neskaup- staður fær í ár um eina milljón króna til reksturs dagheimilis, en fékk fyrir árið 1974 2.5 milljónir. Reyndar verða ekki öll sveitarfélög jafn illa fyrir barðinu á þessum þætti breytingarinnar, a. m. k. ekki þau, sem enga eða litla þjónustu hafa veitt á þessu sviði. Eg er því fylgjandi, að sveitarfélögin sjái um rekstur dagvistarstofnana, svo framarlega sem þeim eru tryggðir tekjustofnar til að standa undir rekstr- inum. Það var ekki gert við síðustu verkefnabreyt- ingu, og því er sú hætta fyrir hendi, að verkefni eins og dagvistun barna verði útundan hjá sveitarfélög- unum, þar sem skylduverkefnin, eins og t. d. skólar, eru búin að gleypa allt fjármagnið. Er ekki einfaldara að greiða hús- mæðrum fyrir að sitja heima? Eg varpaði þeirri spurningu fram í byrjun máls míns, hvort það væri ef til vill hagkvæmara að greiða húsmóður fyrir það að sitja heima og gæta barna TAFLA3.1 REKSTURSKOSTN. DAGH. 1974 f % Akureyri Akranes Neskaup Húsavík Kópavogur Keflavík Meðal- Pálmholt Vorboðinn staður Hábraut Hólmg. 4 tal 01 Barnafj./starfsmán. 59/12 59/12 49/12 40/12 38/12 45/9 46/12 10 GJÖLD 11 Laun og launat. gjöld 66.8 75.4 75.6 77.6 74.9 73.3 73.5 12 Viðhald húss/húsal. 12.1 9.5 7.5 2.0 3.0 8.0 7.4 13 Ljós, hiti, ræsting 7.3 1.7 4.6 5.6 3.7 3.4 4.4 14 Leikföng, föndur, áhöld 3.8 2.8 3.1 4.3 9.2 - 4.2 15 Matvæli - endurgr. f. 8.4 5.6 7.3 9.3 8.3 9.1 7.9 16 Annar rekstrarkostn. 1.6 5.0 1.8 1.2 0.9 6.2 2.6 17 Rekstrarkostn. alls 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 20 TEKJUR ■ LANDS- 21 Vistgjöld 44.4 49.1 37.0 27.5 32.9 22.7 36.9 MEÐAL 22 Gr. af riki 30.2 37.5 33.0 49.9 19.3 27.6 30.9 TAL 25.3% 23 Rekstrarhalli 25.3 13.3 30.0 22.6 47.8 49.6 32.1 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.