Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Síða 56

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Síða 56
HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, form. Fóstrufélags íslands: HIÐ INNRA STARF Á DAGVISTARHEIMILUM Dagvistarheimili eru ætluð börnum frá 3 mánaða til 6 ára aldurs. Þeim er skipt í dagheimili, leikskóla og nú á seinustu árum hafa risið upp skóladagheim- ili fyrir börn á aldrinum 6—12 ára. Ætla ég nú að reyna að lýsa í höfuðdráttum því, sem við köllum innra starf á þessum heimilum. Uppeldisgildi dagheimila og leikskóla tel ég vera það sama, þó að börn á dagheimilum dvelji 8 tíma á heimilinu á dag, en börn í leikskóla 4 tíma, annað hvort frá kl. 8—12 eða kl. 1—5. Blandaðir aldurshópar æskilegri Börnunum er skipt niður í hópa, og eru 14—20 börn í hverjum hópi. Hver hópur nýtur handleiðslu fóstru og nema frá Fósturskóla Islands eða að- stoðarstúlku. Mikið er nú rætt um blandaða aldurs- hópa. 1 blönduðum aldurshópum eru börnin á mis- munandi aldri, en ekki skipt niður eftir aldri, eins og algengast hefur verið. Hefur þetta verið reynt lítil- lega hér á landi og gefið góða raun. Álítum við fóstrur, að þetta komi til með að vera æskilegra fyrirkomulag heldur en aldursskiptingin, ekki sízt, ef þroskaheft börn eiga að fá aðgang að dagvistar- heimilum, eins og margir eru sammála um nú. 1 slíkum hópi gefst barni betra tækifæri til þess að velja verkefni við sitt hæfi og leikfélaga eftir þroska þess sjálfs. Þar er líka gott tækifæri einbirnis eða yngsta barns fjölskyldu til þess að leika sér við enn yngri börn eða öfugt. Eldri börnin hvetja mjög yngri börnin og mörg eldri börnin njóta þess að vera með yngri börnum og leita niður á þroskastig, sem þau hafa hoppað yfir, kannski vegna þess að of miklar kröfur eru gerðar til þess heima. Blandaðir aldurs- hópar krefjast fjölbreyttari verkefna og leikfangavals og nauðsynlegt er, að hver hópur hafi tvær leik- stofur. Einnig er nauðsynlegt, að hver hópur hafi tvær leikstofur, þó að börnin séu á sama aldri. Þær fóstrur, sem hafa unnið við slíkar aðstæður, skilja í rauninni ekki, hvernig hægt er að vinna með 20 barna hóp í einni leikstofu. Leikskólar eru opnir öllum börnum á aldrinum 2—6 ára, en þar sem leikskólar eru alltof fáir, anna þeir hvergi nærri öll- um þeim umsóknum, sem berast um dvöl á þeim, að minnsta kosti hér á þéttbýlissvæðinu. Þarf því að byggja fleiri leikskóla. Á dagheimilum dvelja börn á aldrinum 3 mán.—6 ára. Þó er ekki á öllum dag- heimilum gert ráð fyrir vöggustofu. Réttur barna til dagvistarheimila Dagheimilin eru ekki opin öllum börnum. Það eru nær eingöngu börn einstæðra foreldra og náms- manna, sem hafa aðgang að þeim. Þetta finnst mér og fóstrum yfirleitt ákaflega óréttlátt enda verður sú þjóðfélagsmynd, sem börnin fá, ekki rétt, og stór sá hópur barna, sem aldrei hefur tækifæri til að dveljast á dagvistarheimilum. SVEITARSTJÓRNARMAL

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.