Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Blaðsíða 57

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Blaðsíða 57
Við verðum að opna dagheimilin fyrir öllum börnum, hver svo sem félagsleg aðstaða þeirra er og byggja fleiri dagheimili. En hverjir eru svo þeir, sem kalla á fleiri dag- vistarheimili? Það eru börnin. Þeirra er rétturinn eða þörfin fyrst og fremst. Hvert barn á forskólaaldri á að eiga kost á dvöl á dagvistarheimili, áður en það fer að ganga í skóla. Það ætti að vera jafn sjálfsagt og að börn hefji skólagöngu 6 ára gömul. Dagvistar- heimili eru og eiga að vera til aðstoðar foreldrum við uppeldi barna sinna í nútíma þjóðfélagi. Þess vegna er nauðsynlegt, að samvinna foreldra og þess heim- ilis, sem barnið dvelst á, sé góð, til þess að hún verði barninu til gagns og gleði. Samvinna fóstranna við foreldra fer fram með óformlegum viðtölum og for- eldrafundum. Starfsemi heimilanna er skipulögð svo sem unnt er, t. d. með starfsáætlunum, og hefur það aukizt nú í seinni tíð. Það er vitað mál, að mikið má kenna ungum börnum, sérstaklega kvæði, sögur og átthagafræði. Á öllum dagvistarheimilum eru börnunum kennd kvæði og vísur, sungið mikið og lesnar eða sagðar sögur. Börnin eru líka látin segja frá sjálf, fara með kvæði eða vísu, eftir því sem geta leyfir. Þeim er kennt um nánasta umhverfi sitt, atvinnuhætti o. fl. o. fl. Mikil verkleg vinna er unnin á öllum dag- vistarheimilum, svonefnt föndur. Samt eiga frjálsir leikir og starf að sitja í fyrirrúmi. Þess vegna er svo náuðsynlegt, að samverustundirnar, sem fara í beina fræðslu, séu vel undirbúnar og skipulagðar. Góö leikföng nauðsynleg, en dýr Góð leikföng eru nauðsynleg á öllum dagvistar- heimilum. En því miður er mjög lítið úrval af þessum leikföngum hér í verzlunum. Leikföng þessi eru mjög dýr hér, ekki sízt vegna hárra tolla. Góð leikföng eru ekki munaðarvara, heldur nauðsynleg hjálpar- og kennslutæki hverju barni. Siðast liðinn vetur voru starfandi umræðuhóp- ar í Fóstrufélaginu um ýmislegt, sem viðkemur innra starfi á dagvistarheimilum, svo sem um for- eldrasamvinnu, starfsáætlanir fyrir heimilin og um blandaða aldurshópa. Langar mig að segja hér frá niðurstöðum eins hópsins, sem fjallaði um blandaða aldurshópa, eða félagahópa, eins og þessi umræðu- hópur kallaði það. Helztu ókostir við blandaða aldurshópa voru að þeirra mati þeir, að mjög mis- jafnar aðstæður væru á mörgum eldri dagvistar- heimilanna fyrir þetta rekstrarform. Töldu þær, að hætta væri á, að eldri börnin yrðu afskipt og að þau fengju ekki næg verkefni við sitt hæfi, ef húsnæðið er óhentugt og starfsfólkinu tækist ekki að vinna á annan hátt en gerist á dagheimilum með venjulegri deildaskiptingu. Einnig töldu þær hættu á, að of miklar kröfur yrðu gerðar til eldri barnanna. Kosti aldursblönduðu deildanna töldu þær meðal annars vera: 1. Systkini væru saman. 2. Minni samkeppni innan hópsins og hver ein- staklingur nyti sín betur. 3. Auðveldara fyrir þroskaheft börn að vera á þessum deildum. 4. Yngri börnin lærðu mikið af eldri börnunum. Lærðu fyrr að tala, borða og klæða sig og til- einka sér ýmsar daglegar venjur. Eldri börnin lærðu að taka tillit til yngri barnanna og öfugt. 5. Starf fóstranna yrði fjölþættara en í aldurs- skiptri deild. Dagvistarheimili eru dýr í byggingu og rekstri, en álit mitt er það, að þau færi þjóðinni sjálfstæðari og hamingjusamari einstaklinga, sem eru betur undir það búnir að axla þær byrðar, sem þjóðfélagið legg- ur þeim á herðar síðar meir. SVEITARSTJÓRNARMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.