Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Page 61

Sveitarstjórnarmál - 01.02.1977, Page 61
Unnlð að spjaldskrárgerð. Marga stundlna hafa bókaverðlr setlð vlð skráningu og flokkun, enda spjaldskrárkassarnir orðnlr marglr. Á myndinni eru talið frá vinstri: Þóra Hólm, nemi í bókasafnsfræði, Else Mia Einarsdóttlr, bókasafnsfræðingur, Kristín H. Pétursdóttir, bókavörður á Borgarspítalanum, sitjandi fremst; Sigrún Klara Hannesdóttir, lektor og Erla Kristín Jónasdóttlr, bókasafnsfræðingur. kaupa hráefni í spjöldin og hefja fjölritun á stensl- unum, svo að spjöldin verði tilbúin þegar pant- anirnar fara að berast. Til þess að verk þetta dragist nú ekki úr hömlu, verða opinberir aðilar, sveitarstjórnir og ríkið, að hjálpa til og fleyta þessu máli yfir erfiðasta hjallann. Og í þeim tilgangi var boðað til ofannefnds fundar. Allir hljóta að vera sammála um gildi þessa verks fyrir söfnin, því að mjög víða á landinu eru nú að rísa skólabókasöfn og almenningssöfnin eru að rísa úr öskustónni. Fyrir öll þessi söfn er spjaldskrárdreif- ing af þessu tagi mikil lyftistöng. Með því að bera saman kostnaðinn við að frumskrá bókasafn annars vegar og hins vegar að kaupa tilbúin spjöld, sést greinilega, hvílíkur sparnaður er að því að kaupa þessa þjónustu. Hingað til hefur verkinu verið þokað áfram með fyrirframgreiðslu nokkurra bókasafna, eins og áður var getið, og hefur verið unnið jafnharðan fyrir það fé, sem borizt hefur. Enn er því mikill fengur fyrir okkur, ef einhver söfn eða skólar gætu greitt fyrirfram fyrir sþjaldskrár sínar til þess að hægt væri að hraða verkinu. Erum við alltaf til viðtals við alla þá, sem vilja koma sér upp spjaldskrá yfir safnkost sinn. Annað hvort má skrifa okkur línu í Pósthólf 1167 eða hringja í einhverja félaga í Félagi bóka- safnsfræðinga. Við treystum enn sem fyrr á velvilja bókasafnsfólks og vonum, að ráðamenn ljái málinu lið. Þó að þessu verkefni ljúki, er svo ennþá eftir að ljúka vélritun og allri annarri vinnu á hinum 21.000 spjöldunum, til þess að Bókaskrá 1944—1973 sjái dagsins ljós! 55 SVEITARSTJÓRNARMÁL

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.