Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Page 24
RÁÐSTEFNUR
Skiljiö þiö ekki hvaö? Er þetta ekki alveg augljóst? Viöskiptafræöingarnir Garöar Jóns-
son og Lúövík Hjaiti Jónsson á skrifstofu sambandsins, útskýra töflu í Árbók sveitarfé-
laga 1994 fyrir framkvæmdastjórunum Jónasi Egilssyni, Samtökum sveitarfélaga á höf-
uöborgarsvæöinu, lengst til vinstri, og Birni Hafþóri Guðmundssyni, Samtökum sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi, lengst til hægri.
sveitarfélögum framkvæmd liúsa-
leigubóta í stað þess að greiða bætur
gegnum skattakerfið, einkum með
því að leggja áherslu á að starfsfólk
sveitarfélaganna hefði góða þekk-
ingu á húsnæðismálum og betri yfir-
sýn yfir félagslega hagi fólks þannig
að minni líkur væru á misnotkun í
kerfinu.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra flutti síðan erindi um flutn-
ing grunnskólans til sveitarfélag-
anna. Erindi hans birtist í heild í 6.
tbl. 1994.
Síðdegis á fyrri degi ráðstefnunn-
ar gerði Kristófer Oliversson, ráð-
gjafi hjá Hagvangi hf., grein fyrir
niðurstöðu úttektar sem Hagvangur
hf. hefur gert að beiðni sambandsins
á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna og
Jóhann Rúnar Björgvinsson, hag-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun,
gerði grein fyrir helstu forsendum
fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir
árið 1995 á síðari deginum. Báðir
sýndu þeir fram á að afkomu sveit-
arfélaganna hefði hrakað allveru-
lega síðustu árin og Jóhann taldi
hana ekki hafa verið lakari á þeim
tíma sem uppgjör Þjóðhagsstofnun-
ar um tjárhag sveitarfélaganna nær
til. Hann taldi vanda þeirra ekki síð-
ur útgjaldavanda en tekjuvanda,
eins og hann komst að orði.
Þá fluttu þau Karl Björnsson,
bæjarstjóri á Selfossi, og Sigrún
Magnúsdóttir, borgaráðsfulltrúi í
Reykjavík, erindi um horfur í fjár-
málum sveitarfélaga á næstu árum í
ljósi þróunar síðustu ára. Framsögu-
erindi Karls Björnssonar var birt í
heild í 6. tbl. 1994. Sigrún lýsti fjár-
hagsstöðu borgarsjóðs hin síðari
árin og auknum útgjöldum til
félags- og framfærslumála og kvað
mikinn samfélagsvanda fólginn í
því að tæplega tíundi hver Reykvík-
ingur sé á einn eða annan veg í
tengslum við fjölskyldudeild eða
félagsráðgjafarsvið öldrunarþjón-
ustudeildar félagsmálastofnunar
borgarinnar.
Hún lýsti áhyggjum sínum af yfir-
töku sveitarfélaga á rekstri grunn-
skólans og kvað það kosta ekki
undir fimm milljörðum króna f
Reykjavík að ná markmiðinu um
einsetinn skóla fyrir aldamótin. Hún
kvað það meginmarkmið sveitarfé-
laganna nú að spyrna við frekari
skuldasöfnun.
Ótalin er enn tvö erindi á ráð-
stefnunni. A fyrri degi hennar flutti
Jón Björnsson, félagsmálastjóri á
Akureyri, erindi um fjárhagsaðstoð
sveitarfélaga, sem birt er sem grein
aftan við þessa frásögn, og á þeim
síðari kynnti Tryggvi Sigurbjamar-
son verkfræðingur Landskrá fast-
eigna.
Ráðstefnuna sátu 398 þátttakend-
ur.
Oddvltarnlr Þórir Þorgeirsson i Laugardalshreppi, Eggert Haukdal í Vestur-Landeyja-
hreppi og Magnús Karel Hannesson I Eyrarbakkahreppi og Þórarinn T. Ólafsson, vara-
hreppsnefndarmaöur í Eyrarbakkahreppi. Á milli Þóris og Eggerts sér á ísólf Gylfa
Þálmason, sveitarstjóra Hvolhrepps. Gunnar G. Vigfússon tók myndirnar frá fjármála-
ráöstefnunni á Hótel Sögu.