Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 57
FRÁ LANDSHLUTASAMTÖKUNUM
Stjórn SASS ásamt framkvæmdastjóra á Kirkjubæjarklaustri. Á myndinni eru, taliö frá
vinstri, Hjörtur Þórarinsson framkvæmdastjóri, Guömundur Svavarsson, hreppsnefnd-
armaöur í Hvolhreppi, Steinþór Ingvarsson, oddviti Gnúpverjahrepps, Óli Már Arons-
son, oddviti Rangárvallahrepps, varaformaöur SASS, Ólafía Jakobsdóttir, hrepps-
nefndarfulltrúi í Skaftárhreppi, formaöur SASS, Bjarni Jónsson, oddviti Ölfushrepps,
og bæjarfulltrúarnir Siguröur Jónsson og Kristján Einarsson á Selfossi.
ar atvinnuhátta og nýsköpunar í
matvælaframleiðslu og ferðaþjón-
ustu hins vegar.
Garðar Jónsson, viðskiptafræð-
ingur hjá Sambandi íslenskra sveit-
arfélaga, flutti erindi um áfanga-
skýrslu nefndar sem fjallar um yftr- [
töku grunnskólans. Greindi hann frá
þeim verkefnum sem gert er ráð
fyrir að flytjist frá ríki til sveitar-
félaga og kostnaði þeirra.
Samþykktir aöalfundarins
Umhverfismál
I ályktun aðalfundarins um um-
hverfismal er fagnað þeirri vinnu
sem lögð hefur verið í úrbætur í
sorp- og frárennslismálum enda
tengist það hinni vistvænu matvæla-
framleiðslu sem verið er að leggja
grunn að. Þá var þess óskað að um-
hverfisráðuneytið léti kanna stöðu í
sorp- og fráveitumálum á Suður-
landi. Ahugi er á að komið verði á
tilraunaverkefni með heimaflokkun
sorps. Aðalfundurinn ályktaði að
fram færi heildarkönnun varðandi
neysluvatnsgæði, fráveitur, sorp-
hirðu og förgun úrgangs á Suður-
landi. Leitað verði eftir samstarfi
um verkið við umhverfísráðuneytið
og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Þá hvatti aðalfundurinn allar
sveitarstjórnir til að halda vöku
sinni í þessum málaflokki.
Hcilbrigðiseftirlit og gjaldskrár-
mál
Verkefni við heilbrigðis- og
mengunarvamaeftirlit fara ört vax-
andi og horfur em á þörf fyrir auk-
inn mannafla við þennan málaflokk.
Lagt var til að stjóm SASS skipaði
nefnd í samvinnu við heilbrigðiseft-
irlitið og umhverfisráðuneytið er
vinni að endurskoðun á gjaldskrá, er
taki tillit til eðlis og umfangs starf-
seminnar og gætt verði jafnræðis
milli einstakra atvinnugreina. Jafn-
framt skuli sveitarfélögin standa
straum af kostnaði sem leiðir af
þjónustu við almenning.
Yfirtaka grunnskólans
Aðalfundurinn styður þau áform
að flytja allan rekstur gmnnskólans
til sveitarfélaganna en leggur
áherslu á að við yfirfærsluna verði
sveitarfélögunum tryggðar tekjur til
þess að sinna þessu mikilvæga verk-
efni. Þá þarf að ganga frá samning-
um og réttindamálum starfsmanna
grunnskólans áður en yfirfærslan á
sér stað. Sveitarstjórnir eru hvattar
til samvinnu um skólamál með það
að markmiði að nemendur og starfs-
fólk skólanna njóti sambærilegra
kjara og menntunarskilyrða á öllu
svæðinu þegar yfírfærslan verður að
veruleika.
Þá felur aðalfundurinn stjórn
SASS að móta tillögur að samstarfi
sveitarfélaganna og verksviði
fræðsluráðs vegna væntanlegrar yf-
irtöku gmnnskólans.
Samgöngu- og vegamál
Breikka þarf margar brýr á þjóð-
vegi nr. 1. Þar eru enn margar brýr
einnar akreinar. Suðurstrandarveg-
ur, milli Þorlákshafnar og Grinda-
víkur, er áherslumál Sunnlendinga
ekki síður en Suðurnesjamanna.
Bæta verður hafnaraðstöðuna í Þor-
lákshöfn.
Þá er brýnt að tengja uppsveitir
Arnes- og Rangárvallasýslu með
brú hjá Bræðratungu á Hvítá og við
Þjórsárholt á Þjórsá.
Mikið öryggismál er að byggja
upp Selfossflugvöll. Lendingar þar
hafa aukist mikið milli ára. Þá er
fagnað auknum umsvifum í vikur-
vinnslu en jafnframt bent á að enn
vantar að byggja upp vegina sem
liggja að vikumámunum.
Sjúkrahús Suðurlands
Skorað er á heilbrigðisráðherra að
hefja nú þegar undirbúning að
stækkun Sjúkrahúss Suðurlands
samkvæmt fyrirliggjandi tillögum
stjórnar þess. Ennfremur er þeim
eindregnu tilmælum beint til fjár-
laganefndar Alþingis að á fjárlögum
næsta árs verði tryggt fjármagn til
þessa brýna verkefnis.