Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 8

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 8
FRÆÐSLUMAL samkomulagi, sem var undirritað hinn 4. mars 1996. Hinn 8. og 9. mars 1996 efndi Samband íslenskra sveitarfélaga til fulltrúaráðsfundar í Borgarnesi, þar sem þetta samkomulag var kynnt og samþykkt með þeim orðum, að með því væru „sveitarfélögunum tryggðar tekjur til að mæta kostnaði vegna yfirtöku grunnskólans með fullnægjandi hætti." Vil ég fullyrða, að betur sé fjárhagslega búið að grunnskólanum samkvæmt þessu samkomulagi og við flutninginn en gert hefði verið við óbreytta stöðu hans hjá ríkinu. Páll Pétursson félagsmálaráðherra llutti frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfé- laga, sem tók mið af þessu samkomulagi. Lífeyrisréttindi Til að fullnægja því skilyrði í gildistökuákvæði grunnskólalaganna, að Alþingi samþykkti breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem tryggði öllum kennurum og skólastjórnendum við grunnskóla, sem rétt hafa átt til aðildar að sjóðnum, að- ild að honum, flutti Friðrik Sophusson fjármálaráðherra frumvarp um það efni á Alþingi. Þar er mælt fyrir um það, að kennarar og skólastjóm- endur greiði áfram iðgjald til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, eftir að rekstur grunnskólans llyst frá ríki til sveitarfélaga. I meðförum þingsins var þannig um hnúta búið, að þetta nær einnig til þeirra starfsmanna skóla og fræðsluskrifstofa, sem verða starfsmenn sveitarfélaga og áttu aðild að sjóðnum I. ágúst 1996. Breyting á grunnskólalögum Verkefnisstjórn samdi tillögur um breytingar á nýju grunnskólalögunum. Þær tóku annars vegar mið af sam- komulagi ríkisins og sveitarfélaganna um kostnaðar- skiptingu. 1 stað þess að kennsludögum verði fjölgað í 172 líkt og gert var ráð fyrir í lögunum er þeim fjölgað í 170 og lengdur er tíminn til að koma á einsetningu í grunnskólum auk þess sem bráðabirgðaákvæði um viku- legan kennslutíma er breytt. Breytingarnar varðandi ein- setninguna eru forsendur þess, að hægt sé að dreifa um 7,6 milljarða króna uppbyggingu á aðstöðu vegna ein- setningar á sjö ár í stað fimm. Hins vegar lagði verkefnisstjórn fram tillögur um breytingar, sem eiga rætur að rekja til starfs hennar og mats manna þar á lögunum. í fyrsta lagi var gerð tillaga um, að Samband íslenskra sveitarfélaga færi með þau málefni, sem vörðuðu lleiri en eitt sveitarfélag, ef þeim væri ekki skipað með öðrum hætti í lögum, reglugerðum eða með samkomulagi aðila. Menntamálanefnd Alþingis breytti þessu ákvæði á þann veg, að Samband íslenskra sveitarfélaga fer ekki með þessi málefni heldur hefur frumkvæði að lausn málefna grunnskólans, sem varða fleiri en eitt sveitarfélag og ekki er skipað með öðrum hætti í lögum, reglugerðum eða með samkomulagi aðila. Jafnframt bætti mennta- málanefnd inn ákvæði þess efnis, að endurskoða ber þessa skipan ekki síðar en 1. janúar 1999. Með þessari skipan er sett öryggisnet varðandi við- kvæma málaflokka, sem ganga óhjákvæmilega þvert á sveitarfélögin, nefni ég þar sérstaklega sérkennslu, ný- búafræðslu og skólabúðir. Samkvæmt ákvæðinu vita menn, hvar unnt er að komast að lokaniðurstöðu um slík mál, ef ekki næst samkomulag annars staðar en á vett- vangi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mér er ljóst, að hér kann að vera urn viðkvæmt mál að ræða í augum ýmissa, þegar litið er til sjálfstæðis sveitarfélaga og spurninga um það, hvort einhver annar en þau sjálf, hvert og eitt, getið tekið á málum sem þessum. Alls ekki er verið að koma á nýju stjómsýslustigi. Hitt er haft að leiðarljósi eins og ætíð hefur verið gert á þessu yfir- færsluferli að leita hagkvæmra og skynsamlegra lausna í góðri sátt viðræðuaðila. I öðru lagi mælti frumvarpið fyrir um breytingu á grunnskólalögunum, að sveitarfélag geti falið byggða- samlagi um rekstur grunnskóla þau réttindi og skyldur, sem á sveitarfélagi hvíla samkvæmt lögunum. I þriðja lagi mælti frumvarpið fyrir um, að eignarhlut ríkisins í skólahúsnæði skyldi afskrifa í 15 jöfnum áföngum og hann þannig yfirfærður til þeirra sveitarfé- laga, sem annast og kosta viðhald húsnæðisins. Flutningur á verkefnum fræöslu- skrifstofa Nefnd um flutning á verkefnum fræðsluskrifstofa til sveitarfélaga skilaði tillögum sínum í október 1995. A grundvelli starfs nefndarinnar hafa verið settar reglu- gerðir um sérkennslu og sérfræðiþjónustu. Með þessum reglugerðum er tryggt, að nemendur, sem standa höllum fæti og þurfa sérstakan stuðning í námi, njóta ekki minni þjónustu en verið hefur. Þá verður sérfræðiþjónusta, sem skólar hafa getað sótt til fræðsluskrifstofa, ekki minni en áður. Raunar gera reglugerðirnar um sérkennslu og sér- fræðiþjónustu meira en tryggja óbreytta þjónustu. Þær viðmiðunarreglur um útreikninga á fé til þessara þátta, sem reglugerðirnar festa, hækka í raun framlög til sér- kennslu um allt að 18 milljónir króna og til sérfræðiþjón- ustu um allt að 35 milljónir króna. Verkefnisstjórn lagði í janúar 1996 til að nefndinni um flutning á verkefnum fræðsluskrifstofa yrði falið að stofna vinnuhópa í hverju fræðsluumdæmi til að stuðla að snurðulausum flutningi verkefna til sveitarfélaga. Með þátttöku fræðslustjóra, landshlutasamtaka sveitarfé- laga og svæðasambanda kennara og skólastjóra í þessum vinnuhópum gafst öllum, sem málið snerti beint, færi á að fylgjast með og hafa áhrif á, hvemig staðið yrði að verki. Frá upphafi var ljóst, að sveitarfélögum var í sjálfsvald sett, hvernig þau stæðu að því að taka við verkefnum 7 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.