Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 12
FULLTRÚARÁÐSFUNDIR
Samkomulag sambandsins og rikisstjórnarinnar frá 4. mars um yfirtöku sveitarfélaganna á öllum rekstrarkostnaöi
grunnskólans staöfest í atkvæöagreiöslu á fundi fulltrúaráösins á Hótel Borgarnesi 9. mars. Aö morgni sama dags
staðfesti ríkisstjórnin samkomulagiö.
Samkomulag um yfirtöku alls
rekstrarkostnaðar grunnskólans
Frá 52. fundi fulltrúaráðs sambandsins á Hótel Borgarnesi 8. og 9. mars
Á 52. fundi fulltrúaráðs sambandsins, sem haldinn var
á Hótel Borgarnesi 8. og 9. mars sl., var staðfest sam-
komulag sem stjórn sambandsins hafði gert við ríkis-
stjórnina hinn 4. mars um yfirtöku sveitarfélaga á öllum
rekstrarkostnaði grunnskólans. Að morgni sama dags
hafði ríkisstjómin samþykkt samkomulagið á fundi.
Ályktun fulltrúaráösins um yfirtöku
grunnskólans
Fulltrúaráðið samþykkti samhljóða svofellda ályktun
um grunnskólamál:
„Yfirtaka sveitarfélaga á öllum rekstrarkostnaði
grunnskóla er yfirgripsmesta og vandasamasta verkefn-
ið, sem sveitarfélögin standa nú frammi fyrir. I því felst
mesta verkefnatilfærsla frá ríki til sveitarfélaga sem orð-
ið hefur á síðustu áralugum og þcssi auknu verkefni og
ábyrgð munu efla og styrkja sveitarstjórnarstigið. Miklu
skiptir því að sem víðtækust samstaða sé milli allra aðila
um þetta mikilvæga verkefni.
Fulltrúaráðið minnir á þá fyrirvara, sem XV. landsþing
sambandsins hafði á yfirtökunni:
- um flutning tekjustofna til sveitarfélaganna í sam-
ræmi við aukin verkefni;
- um jöfnunaraðgerðir til að tryggja hag sveitarfélaga
með hlutfallslega háan grunnskólakostnað;
- að fullt samkomulag sé um flutninginn milli ríkis,
sveitarfélaga og stéttarfélaga kennara um kjara- og rétt-
indamál.
Fulltrúaráðið telur að viðunandi samkomulag sé kom-
ið á hvað varðar tekjutilfærslu frá ríki til sveitarfélaga.
Það samkomulag á að tryggja að sveitarfélögin geti yfir-
tekið rekstur grunnskólans og jafnframt að tryggja nauð-
synlegar jöfnunaraðgerðir milli sveitarfélaga.
Fulltrúaráðið lítur svo á að við flutning grunnskólans
til sveitarfélaga sé ekki ætlunin að skerða lífeyrisréttindi
kennara og skólastjórnenda, sbr. bréf verkefnisstjórnar