Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 30

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 30
ALMENNINGSBÓKASÖFN Bókaval og innkaupastefna á almenningsbókasafni Hulda Björk Þorkelsdóttir, bœjarbókavörður í Reykjanesbæ Bókasafn Reykjanesbæjar Bókasafn Reykjanesbæjar er al- menningsbókasafn sem þjónar um 10.500 manna sveitarfélagi, sem varð til við sameiningu þriggja sveitarfélaga á Suðumesjum, Kefla- víkur, Njarðvíkur og Hafna. Auk þess er það héraðsbókasafn fyrir Gullbringusýslu skv. lögum nr. 50/1976. Ibúafjöldi á Suðurnesjum er 15.534 manns, þar af þjónar safn- ið 1.836 manns sem héraðsbókasafn því skv. reglugerð verður sveitarfé- lag sjálfkrafa bókasafnsumdæmi með bæjarbókasafni um leið og það öðlast kaupstaðarréttindi. Sandgerði og Grindavík eru samkvæmt þessu sérstök bókasafnsumdæmi. Hlutverk almennings- bókasafna Hlutverk almenningsbókasafna er skv. 1. gr. áðurnefndra laga: Allar byggðir landsins skulu njóta þjónustu almenningsbókasafna, svo sem nánar er kveðió á um í lögum þessum. Aimenningsbókasöfn eru mennta-, upplýsinga- og tómstundastofnanir fyrir almenning. Þau skulu gefa fólki sem bestan kost á að lesa og fœra sér í nyt bœkur og veita afnot af nýsigögnum, svo sem hljómplöt- um, segulböndum og öðrum miðlun- argögnum, til frœðslu og dœgradvalar. í 9. grein reglugerðar nr. 138/1978, sem fylgir þessum lög- um, segir m.a. um hlutverk mið- safna: 1. að veita almenningi möguleika á œvimenntun 2. að gefa almenningi kost á að verja tómstundum sér til menn- ingarauka og afþreyingar með heimaláni 3. að haida uppi þjónustu við al- menning með bókabílum 4. að annast útvegun bóka og ann- arra gagna að láni frá öðrum söfnum 5. að vera upplýsinga- og gagna- miðstöð, þar sem haldið sé sér- staklega til haga efni, sem varðar umdœmið 6. að veita frœðimönnum sérstaka lestraraðstöðu. Lágmarksframlög sveitar- félaga í lögunum er gert ráð fyrir lág- marksframlögum sveitarfélaga til almenningsbókasafna, þau eru end- urskoðuð árlega af Hagstofu Is- lands. Fyrir árið 1996 eru lágmarks- framlögin svohljóðandi: a) Til bœjarbókasafns greiðir bœj- arsjóður 1.302 kr. á livern íbúa kaupstaðarins. b) Til bœjar- og héraðsbókasafns greiðir bœjarsjóður 1.302 kr. á hvern íbúa kaupstaðarins. Önn- ur sveitarfélög í umdœminu Blaöa- og tímaritadeild í Bókasafni Reykjanesbæjar í Keflavík. 92

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.