Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 34
AFMÆLI
Smábátahöfn Borgfiröinga, Hafnarhólmi, bátalægiö og fjær býliö Höfn. Ljósm. Mats Wibe Lund.
Hundrað ára verslunarafmæli
á Borgarfirði eystra
Magnús Þorsteinsson, oddviti Borgarjjarðarhrepps
í júlímánuði 1995 var þess minnst að eitt hundrað ár
voru síðan Bakkagerði í Borgarfirði eystra varð löggiltur
verslunarstaður. Mikil breyting til batnaðar hlýtur að
hafa orðið í byggðarlaginu þegar íbúar þess fóru að geta
fengið helstu nauðsynjar heima fyrir í stað þess að sækja
verslun yfir tvo fjallvegi til Seyðisfjarðar, að ekki sé tal-
að um Breiðuvík við utanverðan Reyðarfjörð í eina tíð.
Raunar er vitað að Borgfirðingar stunduðu löngum
vöruskiptaverslun við enska og hollenska duggara og
létu ekki af þeim sið þótt einokunarverslun væri komið
á árið 1602. Fyrir og um síðustu aldamót bjuggu um 400
manns í Borgarfjarðarhreppi. Auk þeirra sóttu Hjalta-
staðarþinghármenn og fleiri Uthéraðsmenn verslun til
Borgarfjarðar fram um miðja þessa öld að samgöngur á
landi bötnuðu og verslun hófst á Egilsstöðum. Fljótlega
fór byggð að þéttast í kringum verslunina sem leiddi til
myndunar Bakkagerðisþorps og fjölgaði þorpsbúum
ótrúlega fljótt. Fimmtán árum eftir stofnun fyrstu versl-
unarinnar nálguðust þeir tvö hundruð, sem er álíka fjöldi
og byggir allan hreppinn nú og hefur þó Loðmundar-
fjörður bæst við.
Það var Þorsteinn Jónsson „borgari" sem fyrstur hóf
verslun á Bakkagerði og rak hana og ýmsan annan at-
vinnurekstur í áratug. Fleiri urðu til að hefja verslunar-
rekstur á staðnum framan af árum þó að stutt yrði í þeirri
starfsemi hjá flestum. Af þeim má nefna Bjarna Þor-
steinsson frá Höfn, sem árið 1897 reisti verslunarhús það
sem enn er í notkun. Árið 1918 var Kaupfélag Borgar-
96