Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 35

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Síða 35
AFMÆLI Bakkagerðiskirkja. Myndin er tekin meðan hátíöarmessan stóð yfir. Á afmælishátíðinni söng barnakór undir stjórn Margrétar Bragadóttur. Ljósmyndirnar á siöunni tók Björn Aöalsteinsson. fjarðar eystra stofnað. Það starfaði til 1967 að Kaupfé- lag Héraðsbúa yfírtók rekstur þess. Bæði kaupfélögin höfðu lengst af umfangsmik- inn atvinnurekstur með höndum þar til allra síðustu ár að Kaupfélag Héraðsbúa rekur aðeins dagvöruverslun á Borgarfirði. Ljóst er að mikil umskipti urðu í Borgarfirði við upphaf verslunar á staðnum. Hrepps- nefnd Borgarfjarðarhrepps þótti ástæða til að minnast þessa afmælis með skipu- lögðum hætti og kaus því þriggja manna afmælisnefnd árið 1993. Nefndin hafði með höndum allan undirbún- ing afmælishátíðar, sem að ráði varð að halda helgina 21.-23. júlí 1995. Meðal dagskráratriða voru grill- veisla, dansleikir og hátíðar- messa í Bakkagerðiskirkju. Leikfélagið Vaka hafði tvær sýningar á leikverkinu „Alfa- borgin" - margt er það í steininum sem mennirnir ekki sjá - eftir Kristínu og Sigríði Eyjólfsdætur í leik- stjórn og leikgerð Andrésar Sigurvinssonar. Til hátíðar- samkomu í Fjarðarborg á laugardeginum komu um tvö hundruð manns og kveðjur og gjafir bárust. Þar flutti Árni Halldórsson hrl. hátíð- arræðu. Tónlistarflutningur á samkomunni var undir stjóm Margrétar Bragadóttur tón- skólastjóra. Á árinu 1989 komu nokkr- ir Borgfirðingar saman á fund til þess að leggja á ráð um ritun og útgáfu á Sögu Borgarfjarðar eystra á aldar- afmæli Bakkagerðis sem lög- gilts verslunarstaðar. Sögu- hópurinn, eins og þessi áhugahópur kaus að kalla sig, réði fljótlega Magnús H. Helgason sagnfræðing til þess að ritstýra verkinu. Söguhópurinn hefur starfað sem eins konar ritnefnd þennan tíma og einnig lagt efni til bókar- innar. Ymsir aðilar hafa styrkt útgáfuna. Þar vegur þyn- gst árlegt framlag Borgarfjarðarhrepps. Bókin, sem er 380 bls. að stærð, kom út sl. haust. Verslunarsaga byggðarlagsins tekur að vonum mest rými í bókinni en auk hennar er fjallað um landshætti, atvinnumál og fleira. 97

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.