Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 42

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Page 42
UMHVERFISMÁL Fossálar á Slðu. Hreint Suðurland 1993-1997 Könnun og mat á umhverfisgæðum á Suðurlandi Birgir Þórðarson umhverfisskipulagsfrœðingur, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands Unnið er að heildarkönnun á um- hverfisgæðum á Suðurlandi. Kann- að er með rannsóknum ástand neyslu- og nytjavatns, fráveitumál, sorphirða og sorpförgun, auk ástandskönnunar ýmissa annarra þátta umhverfismála á Suðurlandi, í dreifbýli og á þéttbýlisstöðum. Stefnt er að því að þróa og aðlaga umhverfismál á Suðurlandi á sjálf- bæran máta og að samspil byggðar og umhverfis byggi á virðingu fyrir náttúrunni og vistkerfum hennar. 1. Markmid Verkefnið stefnir að því að stuðla að alhliða umhverfisumbótum á Suðurlandi í samstarfi 29 sveitarfé- laga, fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga. Markmið verkefnisins er betra og hreinna Suðurland þar sem umhverfið verði öllum íbúum til sóma, þar sem framleiðslu- og þjónustufyrirtæki geta sagt með sanni að framleiðsla þeirra komi úr hreinu umhverfi og hægt verði að bjóða gestum heim á Hreint Suður- land og veita þeim bestu fáanlegu þjónustu. Sjálfbær þróun og sú stefnumót- un, sem unnið var að á umhverfis- og þróunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1992, er einn af grunnum verkefnisins. Verkið er unnið í eftirfarandi verkþáttum: 2. Upplýsingaöflun - Rannsóknir Unnið er að öflun upplýsinga á l 04

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.