Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Qupperneq 53
FORNLEIFAR
7. mynd. Gullsteinn hjá Giljá I Þingi, A-Húnavatnssýslu. Sagt er
aö ármaöur Koöráns á Giljá hafi búiö í steininum og tengist
þjóðsagan Þorvaldi víöförla, syni Koöráns (Konráös). Minjar
sem þessar eru andlegar eöa huglægar fornleifar, sem tengjast
hugarfari þjóöarinnar og þvi jafn merkilegar eöa mikilvægar fyr-
ir þjóöarvitundina og efnislegar fornleifar, þótt þær tengist öör-
um þáttum lífsins. Myndin er tekin áriö 1965. (Skyggnusafn
Þjms. nr. 1235. Ljósmyndari Þór Magnússon.)
uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru svo að þær njóti
ævinlegrar friðunar þjóðminjalaganna. Annars vegar
getur verið að minjamar séu ekki eitt hundrað ára eða
eldri og falla þá ekki undir þjóðminjalögin, eða hins
vegar að minjagildið sé það lítið að lítil athugun sé
nægjanleg áður en þær verði fjarlægðar. í einstaka til-
fellum getur verið að vettvangsathugun ein nægi, en í
öðrum tilfellum þarf að rannsaka fornleifarnar mjög
ítarlega og gætu slíkar rannsóknir tekið mörg ár.
Að síðustu ber að nefna að í nokkrum tilfellum getur
verið um fornleifar að ræða sem minjavarslan getur ekki
8. mynd. Bæjarrústir á Hjörleifshöföa. Umhverfi rústanna er
vægast sagt tignarlegt þar sem þær virðast storka náttúruöflun-
um og jafnvel guöunum. Myndin er tekin áriö 1974. (Skyggnu-
safn Þjms. nr. 2632. Ljósmyndari Þór Magnússon.)
9. mynd. Höfnin í Flatey. Eyjan er slokknaöur gígur meö opi mót
suöri. Bátalægi gerast varla betri frá náttúrunnar hendi. Á botni
hafnarinnar hvíla tvö flök skipa, kaupfariö Melckmeyt og
skonnortan Charlotte. Hiö fyrrnefnda sökk áriö 1659 en hiö síö-
arnefnda á seinni helmingi sföustu aldar. Hafiö geymir margt
umhverfis landiö og mikiö af því eru fornleifar sem njóta sömu
verndunarákvæöa og aörar fornleifar. (Ljósmyndari Bjarni F.
Einarsson. Flatey 1993.)
leyft að raskað verði á nokkurn hátt, enda séu þær svo
mikilvægur minnisvarði um sögu þjóðarinnar að jaðri
beinlínis við ábyrgðarleysi að hleypa nokkrum í þær
nema að mikið liggi við. Slíkar fomleifar eru þingbúða-
rústirnar á Þingvöllum, rústir verslunarstaðarins Gása
við Eyjafjörð og Skálholt svo að dæmi séu tekin.
Ef fomleifar glatast eru þær horfnar að eilífu. Þær er
ekki hægt að laga eða endurgera. Þær eru horfnar vem-
leikanum og þær eru horfnar vísindunum. Sama má
segja um fornleifarannsóknir að vissu marki. Þegar forn-
leifar eru grafnar eyðileggjast þær og hverfa, en þær
10. mynd. Rústir i Eldborgarhrauni hjá Grindavík. Trúlega hafa
mannvirkin veriö notuö I tengslum viö útgerö. Myndina valdi ég
fyrst og fremst vegna þess aö hún er elsta litskyggnan í
skyggnusafni Þjóöminjasafnsins, en hún er tekin um miöjan
sjötta áratuginn. (Skyggnusafn Þjms. nr. 1. Ljósmyndari ókunn-
ur.)
I 1 5