Sveitarstjórnarmál - 01.06.1996, Blaðsíða 58
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
3. ársþing SSNV
Þriðja ársþing Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra (SSNV) var haldið við fyrsta flokks aðstæður í
bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki dagana 24. og 25. ágúst 1995. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa voru málefni grunnskólans og at-
vinnumál meginefni þingsins.
Málefni grunnskólans
Framsögumenn um málefni grunnskólans voru Björn
Bjarnason menntamálaráðherra og Garðar Jónsson, við-
skiptafræðingur á skrifstofu Sambands íslenskra sveitar-
félaga.
Eftir miklar umræður á fundinum og í sérstakri þing-
nefnd voru svofelldar tillögur samþykktar:
Þriðja ársþing SSNV skorar á menntamálaráðherra að
sjá til þess að við endurskoðun á lögum um framhalds-
skóla verði byggingarkostnaður heimavista áfram að
fullu greiddur af ríkinu.
Þingið beinir því til stjórnar samtakanna að útfæra í
samráði við sveitarstjómir og fagaðila hvemig þau verk-
efni sem unnin hafa verið á Fræðsluskrifstofu Norður-
lands vestra verði leyst með eftirfarandi skipulag í huga:
1. Launa- og starfsmannamál skólanna flytjist til
þeirra sveitarfélaga sem standa að rekstri hvers grunn-
skóla.
Stjórn SSNV telur ekki ástæðu til að launamál kenn-
ara séu með öðrum hætti en annarra starfsmanna sveitar-
félaganna. Því sé eðlilegt að launaútreikningar séu unnir
af rekstraraðilum á hverjum stað en túlkun samninga
verði á einum stað hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
og umboð til kjarasamninga verði framselt með sama
hætti og gert er nú gagnvart öðrum stéttum opinberra
starfsmanna til launanefndar sveitarfélaga.
2. Kennsluráðgjöf, sálfræðiþjónusta og önnur sér-
fræðileg aðstoð verði rekin með öðru ráðgjafarstarfi
sveitarfélaganna á sviði skóla- og félagsmála.
í dreifbýlinu hefur víðast hvar ekki verið völ á annan i
sálfræðiþjónustu og félagslegri aðstoð en þeirri sem
veitt hefur verið á vegum fræðsluskrifstofunnar í skól-
um. Með því að sameina þá sérfræðiþjónustu sem sveit-
arfélögunum er skylt að veita samkvæmt 42. og 43.
grein grunnskólalaganna núverandi ráðgjafarþjónustu
sveitarfélaganna er ætlunin að sinna þörfum einstakl-
ingsins betur en hingað til.
3. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra stofni
embætti skólafulltrúa sem hafi það hlutverk að sam-
ræma faglegt starf sérfræðinga á sviði skólamála.
Auk samræmingar á faglegu starfi hafi embætti skóla-
fulltrúa eftirtalin verkefni með höndum:
• Að safna og miðla upplýsingum fyrir skóla á svæð-
inu (námskeið, skólaþróun, skólahald á öðrum svæðum
ogfl.).
• Að sinna skýrslugerð um skólahald til menntamála-
ráðuneytis og sveitarfélaganna.
• Að sjá um kennslugagnasafn (innkaup og útlán
kennslugagna og myndbanda).
• Að sinna ráðgjöf um launamál og gerð vinnu-
skýrslna.
• Að sinna ráðgjöf við leikskóla á Norðurlandi vestra.
• Að vera málsvari sveitarfélaganna gagnvart mennta-
málaráðuneytinu og Námsgagnastofnun.
• Að vera sveitarfélögum til leiðbeiningar m.a. við
ákvörðun um kennslumagn í skólum, stöðugildafjölda
og sérkennsluþörf.
Skipulag:
Á Siglufirði verði launaútreikningar fyrir kennara
unnir á bæjarskrifstofu Siglufjarðar og sérfræðiþjónustan
rekin á ábyrgð bæjarstjórnar Siglufjarðar. Kostnaður
greiðist af Siglufjarðarbæ.
I Skagafirði verði launaútreikningar fyrir kennara
unnir af reikningshaldara hvers skóla og kostnaður
greiðist eftir samningi um skiptingu á rekstrarkostnaði.
Sérfæðiþjónustan verði rekin á ábyrgð Sauðárkróksbæjar
og héraðsnefndar Skagafjarðar sem semji um fram-
kvæmdina og skiptingu kostnaðar.
I Húnavatnssýslum verði launaútreikningar fyrir
kennara unnir af reikningshaldara hvers skóla og kostn-
aður greiðist eftir samningi um skiptingu á rekstrarkostn-
aði. Sérfræðiþjónustan verði rekin á ábyrgð héraðs-
nefnda A-Hún. og V-Hún. sem semji um framkvæmdina
og skiptingu kostnaðar.
Skrifstofumar á Siglufirði, Sauðárkróki og Blönduósi
verði reknar sjálfstætt en embætti skólafulltrúa sé rekið
af SSNV. Embætti skólafulltrúa sé valinn staður á
Blönduósi. Samið verði við menntamálaráðuneytið um
yfirtöku á búnaði núverandi fræðsluskrifstofu og
kennslugagnasafni.
Skipulag skólaskrifstofanna verði tekið til endurskoð-
unar í ljósi reynslunnar á ársþingi SSNV þegar tveggja
ára reynsla er fengin af starfseminni.
Atvinnumál
Framsögumenn um atvinnumál voru Helga Haralds-
dóttir, forstöðumaður skrifstofu Ferðamálaráðs á Akur-