Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Qupperneq 26
RÁÐSTEFNUR
öðru en að úthluta styrkjum til fyrir-
tækja úti á landi. Hún snúist m.a.
urn að landið allt fái að njóta sann-
mælis í fjölmiðlum, að landið allt
fái að njóta ljölgunar opinberra
starfa en ekki aðeins suðvesturhom-
ið og síðast en ekki síst þá væri
byggðastefnan um leið mennta-
stefna. Gísli rakti hvernig Horna-
fjörður hefur fengið til sín fleiri
verkefni, t.d. reynslusveitarfélaga-
verkefni, sameining hafi orðið á
svæðinu og það styrkst í kjölfarið.
Drífa Sigfúsdóttir fjallaði um
aukin verkefni sveitarfélaga og
framtíðarsýn á þeim vettvangi. Hún
rakti hvernig verkefni hefðu verið
færð til sveitarfélaga en að tekjur
hefðu ekki alltaf verið nægar til að
mæta þeim kröfum sem löggjafinn
gerir á hendur sveitarfélögunum.
Sameining sveitarfélaga þarf að
hennar mati að eiga sér stað, þar
þurfa ákvæði sveitarstjórnarlaga að
kveða skýrar á um ýmsa hluti. Þá
fjallaði Drífa um nauðsynlegar úr-
bætur í ýmsum málaflokkum sem
mikilvægar væru til að styrkja
byggð, s.s. samgöngumál, upplýs-
ingatækni og fjarskipti og mennta-
mál. Hún gerði jafnframt sérstaka
grein fyrir mörgum framfaraverk-
efnum sem Reykjanesbær hefur
staðið fyrir á undanfömum árum. I
lok erindis síns fjallaði hún um mátt
einstaklingsframtaksins, að heilu
kauptúnin hefðu byggst upp að til-
stuðlan atorkusamra einstaklinga og
að þennan kraft ætti að virkja.
Skoóanaskipti og misjafn-
ar áherslur
A eftir hverjum kafla fyrirlestra
voru umræðu- og fyrirspumatímar.
Þessar umræður verða ekki tíundað-
ar hér þótt þær hafi að sjálfsögðu
verið ákaflega mikilvægar ntálefn-
inu. Skoðanaskipti urðu á tíðum líf-
leg og það var greinilegt að skoðan-
ir á byggðamálum eru skiptar og
hægt að fullyrða að það verður ekki
um þjóðarsátt um framtíðarsýn í
byggðamálum að ræða miðað við
að byggðarþróunin haldi áfram með
óbreyttum hætti. Það var þó að
heyra á ráðstefnugestum og fyrir-
lesumm að nú væri kominn tími til
að slíðra sverðin og reyna til þrautar
SKIPULAGSMÁL
Gerð svæðisskipulags á
Héraði að hefjast
Vinna er að hefjast við gerð
svæðisskipulags á Héraði. Að því
starfi standa ellefu sveitarfélög, Eg-
ilsstaðabær og tíu hreppar Fljóts-
dalshéraðs.
Hvert sveitarfélag hefur tilnefnt
tvo fulltrúa í samvinnunefnd unt
þetta verkefni og skipulagsstjórn
ríkisins hefur skipað Helga Hall-
grímsson vegamálastjóra formann
nefndarinnar. Ur þessum hópi eru
síðan valdir fjórir fulltrúar sent
skipa ásamt formanni framkvæmda-
nefnd.
Skipulag ríkisins mun vinna að
svæðisskipulagsgerðinni en einnig
er gert ráð fyrir að sérstakir ráðgjaf-
ar verði fengnir til að starfa að því.
Auk hefðbundins svæðisskipulags
er ákveðið að samhliða vinnu að því
muni Byggðastofnun vinna byggða-
áætlun fyrir svæðið. Þessu starfi er
áformað að Ijúka á miðju árinu
2000 að sögn Helga Hallgrímsson-
ar, formanns nefndarinnar. Auk
hinnar hagrænu áætlanagerðar sem
unnin verður samhliða gerð svæðis-
skipulagsins er einnig ákveðið að
sögn Helga að fram fari umhverfis-
mat á áætlanagerðinni og þeirri
stefnumörkun sem í henni mun fel-
ast. Verður í því lagt mat á fyrirætl-
anir um orkunýtingu og þætti sem
varða umhverfismál almennt. Vonir
standa til, segir Helgi, að slíkt mat
muni nýtast síðar til nánari útfærslu
á skipulagstillögum þeim sem gerð-
ar verða og að fram komi hvaða
þætti heimamenn vilja leggja meg-
ináherslu á.
að ná sátt um byggðamálin og vinna
þannig að þeim að til hagsbóta verði
fyrir landsbyggðarfólk og Islend-
inga í heild.
Amar Páll Hauksson, fréttamaður
hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri, dró í
lok ráðstefnunnar fram þau helstu
atriði sem hann taldi að hefðu staðið
upp úr í fyrirlestrum og umræðum.
Erindin og umræóurnar
eru á Alnetinu
Öll erindi, umræður og myndir
sem birtust með erindum er að finna
á Alnetinu (Intemetinu) á heimasíðu
Byggðastofnunar. Slóð ráðstefnunn-
ar er: http://www.bygg.is/radstef-
na97.html og vill greinarhöfundur
hvetja þá sem hafa aðgang að ver-
aldarvefnum og vilja kynna sér efni
ráðstefnunnar nánar til að heim-
sækja heimasíðu Byggðastofnunar.
Hafi menn ekki yfir þessari tækni að
ráða þá er einnig mögulegt að fá
senda þá fyrirlestra sem menn vilja
kynna sér nánar frá landshlutasam-
tökum sveitarfélaga í viðkomandi
kjördæmi eða frá Byggðastofnun.
HAFNAMÁL
28. ársfundur Hafnasam-
bandsins í Reykjavík
9.—10. október
Ársfundur Hafnasambands sveit-
arfélaga, hinn 28. í röðinni, verður
haldinn að Hótel Sögu í Reykjavík
fimmtudaginn 9. og föstudaginn
10. október. Fundurinn er haldinn
í boði hafnarstjómar Reykjavíkur í
tilefni af 80 ára afmæli
Reykjavíkurhafnar.
Aðalumræðuefni ársfundarins er
Hafnamál - framkvæmdir og fjár-
mögnun - ný verkaskipti, ný við-
horf. Framsögumenn um þetta efni
verða þeir Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, og Einar K. Guð-
finnsson, formaður santgöngu-
nefndar Alþingis.
2 1 6