Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Síða 9

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Síða 9
SAMEINING SVEITARFELAGA Þjónustubíll fatlaöra á aö þjóna öllum Skagafiröl. Danskennsla í leikskólanum Brúsabæ á Hólum. Danspariö Kristin Kolka og Ármann Óli stíga fyrstu sporin. Ljósm. Guörún Þóra Gunnarsdóttir. Skagfirska skólanetið gegnir mikilvægu hlutverki í aö tengja saman grunnskólana í Skagafiröi. Nemendur grunnskólans á Hofsósi. Ljósm. Valgeir Bjarnason. Vel er stutt viö íþróttir á Sauöárkróki og almenningsíþróttir í há- vegum haföar. ana og upplýsingafulltrúi nefndarinnar. Sameiningar- nefndin rak skrifstofu og stóð fyrir viðtalstímum úti um héraðið þar sem fólki gafst kostur á að afla sér upplýs- inga um sameiningarferlið eða koma að athugasemdum til nefndarinnar. Gefin voru út þrjú kynningarblöð þar sem tillögur sameiningamefndarinnar og ýmsar hagnýt- ar upplýsingar um héraðið og einstök sveitarfélög voru kynntar. Jafnframt gafst fólki kostur á að skiptast á skoðunum um kosti og galla við sameiningu með því að senda inn greinar í kynningarblöðin. Sameiningamefnd- in setti sér ákveðna kostnaðaráætlun í upphafi sem stóðst og segja má að í Skagafirði hafi tekist að halda kostnaði vegna undirbúningsvinnu og kynningarstarfs í algeru lágmarki samanborið við hvað tíðkast hefur víða annars staðar í tengslum við undirbúning slíkrar at- kvæðagreiðslu um sameiningu. í upphafi vom skiptar skoðanir um það innan samein- ingamefndarinnar hvert sameiningarumræðan myndi leiða og það hvort fulltrúum ellefu sveitarfélaga væri mögulegt að komast að samkomulagi um umgjörð að nýju sveitarfélagi. Það sem réð úrslitum um að þetta tókst voru þær opinskáu umræður og það traust sem skapaðist innan hinnar fjölmennu sameiningarnefndar. Eftir að málefnavinnu innan nefndarinnar var lokið án ágreinings var samþykkt mótatkvæðalaust innan nefnd- arinnar að leggja til að sveitarfélögin ellefu yrðu samein- uð í eitt sveitarfélag og skrifuðu nefndarmenn undir ályktun þess efnis. Sáttmáli sameiningarnefndar var lagður fyrir allar 11 sveitarstjómimar sem samþykktu að ganga til atkvæðagreiðslu á grundvelli hans. Þessi samstaða og þetta traust lagði gmnninn að sam- einingu þessara sveitarfélaga. Tillögur nefndarinnar em umfangsmiklar og verða þeim ekki gerð skil hér. Þær er á hinn bóginn unnt að nálgast hjá greinarhöfundi.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.