Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Side 23
BYGGÐAMAL
árið 1986 og það veldur sjálfkrafa
aukningu með því að þá er farið að
telja allar hreyfingar milli staða og
að og frá landinu. Það er ekki auð-
velt að greina þessar tölur vegna
þess hversu sveiflukenndar þær em.
Ef við lítum til undanfarinna 30 ára
er mismunur aðfluttra og brottfluttra
tap sem nemur 256 á ári. A síðustu
10 ámm er tapið 180 á ári. Flutning-
amir í báðar áttir hafa aukist. Þrátt
fyrir það hefur flutningstap á einu
ári farið minnkandi ef undan er skil-
ið árið 1995.
Mismunur er á samsetningu þess
hóps sem flytur brott á móti þeim
sem hingað flytjast. A fimm árum,
frá 1992-1996, fluttu hingað 519
fleiri erlendir ríkisborgarar en héðan
fóm. Á sama tíma fluttu 3.600 fleiri
Islendingar burt en hingað komu.*
Ég hef ekki skoðað lengra tímabil
og ég treysti mér ekki til að alhæfa
út frá þessu tímabili meðal annars
vegna þess sem þegar er sagt um
sveiflur í flutningunum.
Flutningar eru mestir aö
og frá Noröurlöndunum
Á árinu 1996 var staðan sú að
næstum tveir af hverjum þremur
sem hingað komu komu frá Norður-
löndunum og þrír af hverjum fjómm
sem héðan fóru fóru þangað.** Ef
litið er til íslenskra ríkisborgara ein-
vörðungu fara næstum því fjórir af
hverjum fimm til Norðurlandanna
og sömu sögu er að segja um þá ís-
lensku ríkisborgara sem hingað
flytjast. Tengsl okkar við frændur
okkar á Norðurlöndum eru því
greinilega mjög mikil á þessu sviði.
Flestir koma hingað frá Danmörku
og Svíþjóð en flestir fara héðan til
Danmerkur og síðan til Noregs.
Danmörk hefur töluverða sérstöðu
enda flytur rúmur fjórðungur allra
sem hingað koma þaðan og tæpur
helmingur þeirra sem flytja burt fer
til Danmerkur. Islenskum ríkisborg-
umm fækkaði einungis í Svíþjóð á
árinu 1996. Þrátt fyrir allt er þrösk-
* Hagstofa íslands, Landshagir 1993-1997.
** Hagstofa íslands, Landshagir 1997.
uldurinn gagnvart Norðurlöndunum
greinilega lægstur og auðveldast að
flytjast þangað. Jafnframt em senni-
lega mestar líkur á því að fólk flytji
heim aftur þaðan. 1 raun em Norð-
urlöndin einungis þrjú í þessu tilliti,
Danmörk, Svíþjóð og Noregur. Fer
það sennilega eftir efnahagsástandi í
löndunum hvert fólk flytur helst. Nú
er uppgangur í Danmörku og Nor-
egi og þá flytur fólk þangað. Aftur á
móti er efnahagsástand slæmt í Sví-
þjóð og þaðan kemur fólk til baka.
Að Norðurlöndunum frátöldum
eru það Bandaríkin, Bretland og
Þýskaland sem fyrst og fremst koma
við sögu að því er varðar flutninga
íslenskra ríkisborgara. Frá nokkmm
löndum em flutningar þar sem ein-
ungis erlendir ríkisborgarar koma
við sögu. Pólland hefur haft þar al-
gera sérstöðu á undanfömum ámm
en Taíland, Filippseyjar og
Júgóslavía einnig.
Búferlaflutningar milli
landa eru heldur meiri á
höfuöborgarsvæóinu
Búferlaflutningar milli landa eru
nokkuð meiri á höfuðborgarsvæðinu
en á landsbyggðinni þótt munurinn
sé ekki ýkja mikill. Þannig em að-
fluttir 1,3% af íbúafjölda árið 1997
en brottfluttir 1,2%. 3. mynd sýnir
flutninga gagnvart útlöndum á
landsbyggðinni. Hluti erlends
verkafólks í fjöldanum er umtals-
verður því á árinu 1997 veitti fé-
lagsmálaráðuneytið 554 ný atvinnu-
leyfi á landsbyggðinni en aðfluttir
samtals frá útlöndum vom 1351.*
Á höfuðborgarsvæðinu eru flutn-
ingar í hvora átt gagnvart útlöndum
1,6% af íbúafjölda árið 1997. Flutn-
ingarnir eru sýndir á 4. mynd. Ef
við horfum einungis á síðustu árin
sem þessi mynd sýnir þá er þróunin
mjög hagstæð fyrir þetta svæði.
Fjöldi brottfluttra hefur minnkað og
fjöldi aðfluttra hefur vaxið þannig
að á síðasta ári er jafnvægi í búferla-
flutningum gagnvart útlöndum á
höfuðborgarsvæðinu samkvæmt
bráðabirgðatölum Hagstofunnar.**
Ef við reynum að setja flutninga
hér á landi stuttlega í samhengi við
nágrannalöndin er einn helsti mis-
munurinn á Islandi og öðmm Norð-
urlöndum að þar fjölgar íbúum
vegna búferlaflutninga milli landa
en hér á landi fækkar fólki vegna
flutninganna. Annar munur er sá að
á Islandi er hærra hlutfall þeirra sem
flytja að og frá heimamenn en
annars staðar á Norðurlöndum. Sem
dæmi má taka að í Danmörku eru
um 60% þeirra sem flytja til og frá
landinu ekki Danir en hér á landi em
3/4 aðfluttra íslendingar og 84%
brottfluttra. Þá er tíðni flutninga yfir
landamæri lægri hjá þeim Norður-
landanna sem em fjölmennari en við
nema aðflutningur til Danmerkur
* Félagsmálaráðuneytið, Yfirlit yfir veitingu
atvinnuleyfa á árinu 1997.
** Tölur um búferlaflutninga eru fengnar hjá
Hagstofu íslands. Tölur fyrir árið 1997 eru
bráöabirgðatölur.
85