Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Blaðsíða 32
BYGGÐAMAL
tök atvinnulífsins (mikilvægt er að
slíkt starf fari fram í viðkomandi
byggðarlagi); reka kynningar- og
upplýsingaþjónustu til þess að laða
að innlenda og erlenda fjárfesta og
fleira.
Afar brýnt er að auka samkeppn-
ishæfni fyrirtækja á landsbyggðinni
með því að auka hæfni stjórnenda
og starfsmanna með fræðslu og
menntun; auka gæði framleiðslunn-
ar með ráðgjafarverkefnum og auka
þekkingu stjórnenda á alþjóðavið-
skiptum.
Ný sóknarfæri skapast með upp-
lýsingatækninni. Nú er mögulegt að
tjölga stöifum úti á landi með fjar-
vinnslu, þ.e. störfum sem byggja á
upplýsingum úr gagnagrunnum,
bankastarfsemi og símsvörun. Er-
lend dæmi um slíkt eru sakaskrá
bresku lögreglunnar sem er í Norð-
ur-Skotlandi og innheimtudeild
sænska sjónvarpsins sem er í Norð-
ur-Svíþjóð. A Skotlandi eru þess
einnig dæmi að vel menntaðar kon-
ur hafi atvinnu af því að gera út-
drætti úr bókum og greinum fyrir
bandarísk fyrirtæki og fái greidd
laun sem eru mun hærri en tíðkast á
svæðinu. A Islandi mætti nefna
skráningar- og upplýsingavinnslu-
stofnanir, eins og Fiskistofu, Raf-
magnsveitur ríkisins, Tollstjóraemb-
ættið og fleiri stofnanir sem gætu
flutt hluta af starfsemi sinni út á
land. Tæknilega er því ekkert til fyr-
irstöðu lengur.*
Störf á vegum hins opinbera, svo
sem í skólum, á sjúkrahúsum og í
stjómsýslu, eru mikilvæg í atvinnu-
Iífi. Margir vel menntaðir einstakl-
ingar hafa þar fengið störf við hæfi
og opinber störf eru oft kjölfesta í
tekjulegu tilliti fyrir bæjarfélög,
einkum þegar illa árar. Því er mikil-
vægt að fjölga ársverkum á vegum
opinberra stofnana á landsbyggðinni
á næslu árum, enda er óeðlilega hátt
hlutfall slíkra starfa í Reykjavík.**
* RHA, 1998: Upplýsingatœkni og byggðarþró-
un.
** Byggðastofnun, 1998: Skipting útgjalda og
stöðugilda hjá ríkissjóði og fyrirtœkjum í meiri-
lilutaeigu ríkisins eftir kjördœmum.
Síðast en ekki síst er mikilvægt
að frumkvæði og ráðdeild fólks í
heimabyggð aukist frá því sem ver-
ið hefur. Enginn veit betur en
heimamenn hvaða möguleikar og
hvaða hæfileikar leynast á svæðinu
og hvaða ráð duga til að leysa já-
kvæða krafta úr læðingi. Svo að vel
megi takast til er nauðsynlegt að til
korni markviss stefna og almennur
stuðningur stjórnvalda. Einnig er
mikilvægt að heimamenn kalli til
ráðuneytis færustu sérfræðinga, inn-
lenda sem útlenda, er veitt geti holl
ráð til framtíðar. A hinn bóginn
verður landsbyggðarfólk að láta af
sundurþykkju og hrepparíg en vinna
í samvinnu að markvissu uppbygg-
ingarstarfi landsbyggðar. Eg nefni
aðeins áætlanir um jarðgöng í því
sambandi. Loks er mikilvægt að
fólk úti á landi styðji dyggilega við
bakið á hæfileikaríkum einstakling-
um á heimaslóðum. Þar hefur oft
verið pottur brotinn.
Lokaorö
Hér hefur verið sýnt fram á að
verulega vantar upp á að lands-
byggðin standi jafnfætis höfuðborg-
arsvæðinu í fjölbreytilegu atvinnu-
lífi.
Áætlað er að störfum fyrir vel
menntað fólk, svo sem sérfræðinga
og tæknimenntað fólk auk stjórn-
enda og framkvæmdastjóra, muni
fjölga mjög á næstu árum á sama
tíma og störfum í frumvinnslu muni
fækka. Þannig er því spáð að árs-
verkum í landbúnaði fækki á næstu
árum og ársverkum í sjávarútvegi
(veiðum og vinnslu) einnig. Árs-
verkum í iðnaði mun líklega tjölga
og margvíslegum þjónustustörfum
sömuleiðis. Loks er því spáð að
góðar horfur í efnahagsmálum muni
fjölga ársverkum verulega til ársins
2002. Þess ber að geta að þau árs-
verk sem hverfa í frumvinnslugrein-
um eru einkum á landsbyggðinni en
fjölgunin mun líklega eiga sér stað
að mestu á höfuðborgarsvæðinu í
þjónustugreinum, stóriðju og bygg-
ingariðnaði. Það er því ljóst að
brýnna aðgerða er þörf til að jafna
atvinnutækifæri landsmanna.
Skilyrði til atvinnuuppbyggingar í
íslensku atvinnulífi verða að teljast
góð þar sem nokkrar atvinnugreinar
geti ráðið umtalsvert fleira starfs-
fólk í náinni framtíð. Til að draga úr
búseturöskun á Islandi þarf hins
vegar að tryggja að störfum í versl-
un og þjónustu fjölgi á landsbyggð-
inni og að störfum fyrir vel menntað
fólk á vegum hins opinbera sömu-
leiðis.
Heimildir
Byggðastofnun, 1997: Staða sauðfjárrœktar og
álirif á byggðarþróun. Reykjavík, september
1997.
Byggðastofnun, þróunarsvið 1997: Upplýsingar
um ársverk eftir kjördæmum. Reykjavík.
Byggðastofnun, 1998: Skipting útgjalda og stöðu-
gilda hjá ríkissjóði og fyrirtœkjuni í meiri-
hlutaeigu ríkisins eftir kjördœmum. Reykjavík,
mars 1998.
Employment Outlook, OECD, París, júlí 1994.
Fiskifélag íslands 1997: Upplýsingar um afla.
Hagstofa íslands, 1996: Vinnuafl 1963-1990.
Reykjavík, janúar 1996.
Hagstofa íslands, 1997: Hagskinna 1997. Reykja-
vík.
Hagstofa íslands, 1997: Vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar í apríl 1997.
Hagþjónusta landbúnaðarins, 1997: Þróun sauð-
fjárrœktar á lslandi. September 1997.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, 1997: Skýrsla
iðnaðar- og viðskiptaráðlierra um framgang
verkefna á sviði stóriðju, 6. okt. 1997.
Ingjaldur Hannibalsson, 1995: Framleiðni og
framleiðniþróun. Ritröð Viðskiptafræðistofn-
unar Háskóla íslands og Framtíðarsýnar ehf.
Framtíðarsýn, Reykjavík, 1995.
NBUs statistikrapport 1996. Stokkhólmi, desem-
ber 1996.
Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, 1998:
Þróun atvinnutœkifœra á höfuðborgarsvœði
og landsbyggð. Greinargerð unnin fyrir stjóm
Byggðastofnunar. Akureyri, janúar 1998.
Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri, 1998:
Upplýsingatœkni og byggðarþróun. Greinar-
gerð unnin fyrir stjóm Byggðastofnunar. Ak-
ureyri, janúar 1998.
94