Sveitarstjórnarmál - 01.06.1998, Page 48
UMHVERFISMAL
kostnaðarliður við förgun sorps.
Undir þessum kringumstæðum
myndast hvati fyrir sveitarfélög til
þess að minnka það magn sem fer
til urðunar þar sem við það sparast
bæði flutningar og urðunargjöld. Sá
spamaður sem af því hlýst skapar
svigrúm til að fjárfesta í og reka
starfsemi sem endurvinnur eða end-
urnýtir ákveðna efnaflokka sem
næst upphafsstað. Kringumstæðum-
ar skapa loks hvata tii þess að vanda
til þess sem verið er að framleiða til
að afurðin verði nothæf og helst af
öllu söluhæf. Ef afurðin safnast fyrir
myndast ný vandamál.
Lífræn úrgangsefni eru þau efni
sem mest ástæða er til að halda eftir,
vinna og nýta enda eru hagkvæmir
endurvinnslufarvegir fyrir önnur efni
harla fáir á Islandi. Stefnumið stjóm-
valda á Islandi hníga að því að
minnka magn úrgangs sem fer til
urðunar um allt að 50% og það strax
um næstu aldamót. Við nýjar að-
stæður á Islandi fer e.t.v. að verða
peningalegur sparnaður fyrir mörg
sveitarfélög að ná þessu markmiði.
Helmingsminnkun á sorpi til urðun-
ar þýðir sparnað við flutning og
spamað við urðunargjöld. Nákvæm-
lega hver ávinningurinn er á hverj-
um stað helgast af nokkrum þáttum
sem eru ólíkir frá einu sveitarfélagi
til annars. Þar má nefna fjarlægðir til
urðunarstaðar, landrými, stærð og á-
ætlaðan endingartíma urðunarstaðar,
fólksfjölda og magn einstakra úr-
gangsflokka sérstaklega, upphæðir
urðunargjalda, rekstrarform sorp-
samlags og eignarhluti sveitarfélags,
þörf og markaði fyrir moltu í heima-
byggðinni o.l'l. Kostnað og ábata
þarf því hvert og eitt sveitarfélag að
rneta með tilliti til allra þessara þátta.
UMFERÐARMÁL
Umferðaröryggisfulltrúar Slysavarnafélags íslands
og Umferðarráðs
Slysavarnafélags Island og Um-
ferðarráð tóku höndum saman á síð-
astliðnu sumri og réðu einn umferð-
aröryggisfulltrúa, Kristján Frið-
geirsson, á Suðurlandi. Honum
tókst að sýna fram á að þetta væri
ekki svo afleit hugmynd og í fram-
haldi af því vomm við ráðnir fimm
til viðbótar. Nú em því starfandi sex
umferðaröryggisfulltrúar á öllu
landinu í sumar. Vonir þeirra sem
að verkefninu standa eru að þetta
gæti orðið að heilsársstarfi og stuðl-
að þannig að bættu öryggi í umferð-
inni allt árið um kring.
Hlutverk þessara fulltrúa er marg-
þætt. Meðal þess helsta má nefna:
• að vinna að því að koma í veg
fyrir umferðarslys og bæta umferð-
armenningu á sínu svæði í nánu
samstarfi við Slysavarnafélag ís-
lands, Umferðarráð, umferðarör-
yggisnefndir og lögreglu.
• að stuðla að bættu umferðarör-
yggi og fræðslu til almennings um
umferðarmál.
Að eiga gott samstarf við vegfar-
endur og aðra íbúa á svæðinu. Hann
á að koma á framfæri upplýsingum
um slysagildmr og sjá um að ábend-
ingar er varða umferðaröryggi kom-
ist til almennings og opinberra að-
ila.
• að vera tengiliður Slysavamafé-
lagsins og Umferðarráðs við Vega-
gerðina, lögreglu, heilbrigðisyfir-
völd, slökkvilið og aðra er tengjast
umferðaröryggismálum.
Þá eiga öryggisfulltrúarnir að
virkja svæðisfjölmiðla í þágu örygg-
ismála.
Umferðaröryggisfulltrúarnir
leggja í sumar mikla áherslu á ör-
yggi barna í bílurn og notkun bíl-
belta og munu skipulega vinna að
fræðslu og eftirliti með því. Þá
vinna þeir að hraðamælingum í
samvinnu við Umferðarráð og lög-
reglu.
Hafiö samband viö um-
feröaröryggisfulitrúana
Fulltrúamir vilja hvetja fólk til að
hafa samband við sig og koma á
framfæri ábendingum um hættur
fyrir vegfarendur hvort heldur eru
gangandi, akandi eða hjólandi. Gott
samband við almenning er lykilat-
riði í störfum öryggisfulltrúanna.
Til þess að auðvelda fólki að hafa
samband við þessa menn fylgja hér
nöfn þeirra og símanúmer:
Kristján J. Friðgeirsson
á Suðurlandi sími 4821905/4821350
Austurvegur 56 800 Selfossi
Jón Gröndal
á Suðumesjum sími 4267111
Víkurbraut62 240Grindavík
Oskar Þór Guðmundsson
Austurlandi sími 4751112
Skólavegur 53 750 Fáskrúðsfirði
Örn Armann Jónsson
Vesturlandi sími 4386838
Sólvellir 7 350 Gmndarfirði
Sigurbjörn Gunnarsson
Norðurlandi sími 4662151
Ólafsvegur 4 625 Ólafsfirði
Júlíus Ólafsson
Vestfjörðum sími 4563150
Aðalstræti 24 400 ísafirði
Með bestu kveðjum og óskum um
slysalausan akstur í sumar.
Umferðaröryggisfulltrúamir.
1 1 O