Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Page 12
KYNNING SVEITARFÉLAGA
Hvanneyri. Stóra byggingin til hægri á myndinni er hús heimavistar Landbúnaðar-
háskólans sem einnig er nýtt sem sumarhótel.
kosta svæðisins.
I framtíðarsýn íbúa Borgarfjarðarsveitar er birtist í
skýrslunni Byggð í sveit, og byggir á könnun á atvinnu-
málum í hinu nýja sveitarfélagi, kemur ffam að íbúar sjá
mikla möguleika hvað atvinnulíf snertir. Aðgengi að
heitu vatni til húshitunar og fyrir atvinnustarfsemi er
gott, ástand í dagvistunar- og grunnskólamálum ágætt
og íbúar telja að uppeldisskilyrði bama séu mjög já-
kvæð.
Möguleikar á uppbyggingu ferðaþjónustu em talsvert
góðir, bæði byggðir á áratugareynslu og ónýttum val-
kostum. Hér er grunnur fyrir heilsu- og menningar-
tengda ferðaþjónustu. í Reykholtsdal er vatnsmesti hver
Evrópu, Deildartunguhver, og vatn úr honum hitar upp
Akranes og Borgames.
Menningararfurinn er víða en helst beinast sjónir
manna að arfinum og uppbyggingunni í Reykholti. Þar
er starfandi fræðasetur er ber nafn þekktasta íslendings
sögunnar, Snorra Sturlusonar. Snorrastofa verður form-
lega opnuð í sumar. Nýja kirkjan í Reykholti hefúr nýst
vel til tónleikahalds og annarra fjölsóttra menningarvið-
burða. Hótel Reykholt er heilsárshótel og vel sótt af
fundar- og ráðstefnugestum.
Landsbókasafn íslands verður með varaeintakasafn í
gamla skólahúsnæðinu sem hefúr verið endumýjað að
mestum hluta. En sem kunnugt er var skólastarf lagt af í
Héraðsskólanum í Reykholti árið 1997.
Árið 2000 verða ýmsir menningarviðburðir tengdir
Reykholti, m.a. Reykholtshátíðin sem verður siðustu
helgina í júlí og verða viðburðir tengdir kristnitökunni á
dagskrá svo og opnun Snorrastofu sem áður er getið.
Borgarfjarðarsveit er eitt af mörg-
um sveitarfélögum á landsbyggðinni
er tengjast Reykjavík menningarborg
Evrópu 2000 eða M2000. í ágústmán-
uði mun Evrópukórinn dveljast í
Reykholti við æfingar ásamt Björk
Guðmundsdóttur. Málþing um tónlist
og feril Bjarkar Guðmundsdóttur
verður í Reykholti um miðjan ágúst,
einn af mörgum menningarviðburð-
um ársins.
Á Hvanneyri virðist vera vöxtur í
landbúnaðartengdum greinum og
horfur í þá veru miklar og hafa aukist
með stofnun Landbúnaðarháskólans.
Vesturlandsskógar er eitt af verkefú-
um héraðsins sem Borgarfjarðarsveit
tengist vel og á þeim vettvangi er
mikil gróska. Á Hvanneyri er einnig
unnið að uppbyggingu ferðaþjónustu
sem víða annars staðar i sveitarfélag-
inu, en þar er starfandi sumarhótel og
einnig tvö söfú, Búvélasafúið og Ull-
arselið.
Sóknarfærí
Fyrir liggur Svæðisskipulag sveitarfélaganna norðan
Skarðsheiðar 1997-2017.
Unnið er að aðalskipulagi fyrir Borgaríjarðarsveit sem
stefnt er að að ljúka á haustmánuðum. Þar verður m.a.
horft til uppbyggingar þéttbýliskjamanna í sveitarfélag-
inu, með augun á uppbyggingu atvinnulífs og fjölgun
ibúa. Við emm þátttakendur í Staðardagskrá 21 og undir
þeim formerkjum er m.a. unnið að ýmsum umhverfis-
málum sem til bóta verða að teljast.
Umhverfisvænt samfélag með mikinn menningararf
og góða þjónustu á að nýta sér slíka aðstöðu og blása til
sóknar, sóknar til að styrkja innviðina og efla byggð.
Opnun Hvalfjarðarganga hinn 11. júlí 1998 hefúr auk-
ið möguleikana á eflingu byggðar á okkar svæði. Helstu
breytingamar em þær að markaðssvæðin á Suðvestur-
landi og Vesturlandi hafa færst saman; í atvinnulegu til-
liti tengjast þessi svæði einnig betur. Eftirspum eftir hús-
næði hefúr aukist mjög og ferðum fólks í sumarhús á
svæðinu hefúr fjölgað.
Við uppbyggingu samfélagsins þarf að huga að
nokkmm meginstoðum, svo sem skipulagi, samgöngum,
umhverfinu, fjölbreyttri atvinnu, menningu, fræðslu- og
félagsþjónustu, ástandi fjarskipta og símamála og þétt-
ingu byggðar.
Að þessum þáttum er unnið í Borgarfjarðarsveit, í
sveitinni, sem teygir sig frá fjöm til fjalls með íjölbreytt
landslag, yfir kjarri vaxna ása og dali, góðar laxveiðiár
og vötn, jökla og heita hveri, hella og fossa, stórbrotin
gil og hraunmyndanir, fomminjar og sögu.
6