Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Blaðsíða 16
MENNINGARMAL
Sýning á verkum nemenda og starfsfólks var laugar-
daginn 18. mars. Einnig var almenningi frjálst að koma í
skólann í þemavikunni, taka þátt í vinnu nemenda og
starfsfólks og kynna sér hvemig nemendur í gmnnskóla
vinna sameiginlega að einu þemaverkefni.
Viltu vita meira: www.bessasthr.is
Tölvupóstur: smn@ismennt.is
MOSFELLSBÆR
Varmárþing í júní
Varmárþing er útivistar-, lista- og menningarhátíð
haldin á bökkum Vannár í Mosfellsbæ. Þar verða dag-
lega viðburðir fyrri hluta júnímánaðar og lýkur menning-
arhátíðinni með þjóðhátíðarhöldum 17. júní árið 2000.
Fléttaðir verða saman margháttaðir lista- og menningar-
viðburðir úr ólíkum áttum. Einkenni Varmárþings er að
flytjendur og þátttakendur em Mosfellingar sjálfír.
Myndlistarmenn sem stunda leirlist, málun, glerlist,
ljósmyndun, grafík og skúlptúr munu kynna verk sín og
viðfangsefni. 1 kvosinni sameinast menning, saga og
fagurt umhverfi. Þættir úr sögu og menningu bæjarins
verða viðfangsefni á sérstakri sýningu og inn í það verð-
ur fléttað efni úr verkum og ævi heiðursborgara Mos-
fellsbæjar, Halldórs Laxness. Tónlist er ineð miklum
blóma í Mosfellsbæ. Skólahljómsveit, kórar og einstakir
flytjendur munu flytja tónlist á bökkum Varmár. Leik-
listaruppákomur verða á vegum Leikfélags Mosfells-
sveitar. Þá verða þátttakendur í ýmsum félögum bæjar-
ins með kynningar og uppákomur undir samheitinu
íþrótta- og tómstundamenning árið 2000.
Viltu vita meira: www.mosfellsbaer.is
GRINDAVÍK
Tengsl menningar og náttúruauðæfa 4.-10. júní
Grindavíkurbær, Hitaveita Suðumesja og Bláa lónið
hf. bjóða til afar sérstæðrar og fjölbreyttrar dagskrár í
sumarbyijun. Náttúruauðæfi Reykjaness em voldugt afl
sem setur svip á atvinnu- og menningarlíf fjölsóttasta
ferðamannastaðar landsins. Dagskráin hefst á sjómanna-
daginn við og í Grindavíkurhöfn þar sem heimamenn
ffumflytja Hafgúur eftir Atla Heimi Sveinsson, gjöming
fyrir togara, mótorbáta, þokulúðra, eimpípur, olíutunnur
og slipphljóðfæri. Meðal annarra viðburða em sýning á
útilistaverkum ungmenna; tónminjasýning til heiðurs
staðartónskáldinu Sigvalda Kaldalóns; Spuni, röð raf-
og djasstónleika í lllahrauni umhverfis Bláa lónið, og
síðast en ekki síst fjöllistaverkið Námur í Eldborg, með
þátttöku þrjátíu og sex alþjóðlegra listamanna sem frá
1987 hafa smíðað verk er stikla á tólf öldum íslandssög-
unnar og glímunni við óblíða náttúm landsins.
Viltu vita meira: www.bluelagoon.is
REYKJANESBÆR
Endurbygging Duus-húsa og lýsing Bergsins maí-
september
Reykjanesbær valdi sér tvö stór og viðamikil ffamfara-
verkefni sem aðalffamlag til Menningarársins. Annað er
endurbygging Duus-torfúnnar sem er við Grófina, smá-
bátahöfnina í Keflavík. Duus-húsin vom byggð á seinni
hluta síðustu aldar, það elsta frá 1871. Húsin em ekki
einungis merki um stórhug verslunarmanna á síðustu öld
heldur einnig minnisvarði um ákveðna byggingarlist og
setja þau sterkan svip á bæinn. Duus-húsin munu geyma
byggðasafh svæðisins og um leið verða menningarmið-
stöð. Lýsing Bergsins er fagurfræðilegt verk sem ekki á
sinn líka á Islandi. Kveikt verður á þeim ljósum sem lýsa
eiga upp sjávarhamra Bergsins, útivistarstað Reyknes-
bæinga, hinn 2. september 2000.
Viltu vita meira: www.rnb.is
SANDGERÐI
Fræðasetrið í Sandgerði 18. mars-23. júní
Á dagskrá Fræðasetursins menningarárið 2000 í Sand-
gerði verður röð fyrirlestra og gönguferða með leiðsögn
undir yfirskriftinni „Menning og náttúra", m.a. verða
fyrirlestrar um náttúm, jarðffæði, lífríki hafsins, sæ- og
vatnaskrímsli á Suðumesjum, keltneska húsagerð, leynd-
ardóma íslenskra undirdjúpa og fomminjar á Reykjanesi.
Fræðasetrið leitast við að tengja mann við náttúm, sögu
og umhverfi. Þar em m.a. boðnar fúgla-, fjöm- og tjama-
skoðunarferðir. Innan veggja setursins eiga gestir kost á
að skoða hluta af náttúm Islands í návígi, s.s. safn ým-
issa lífvera, jurta og lifandi dýra í ferskvatns- og sjóbúr-
um, auk steinasafns. Sérstök áhersla er lögð á að gestir
fái leiðbeiningar uin hvers skuli leita í fjörum og tjömum
í nágrenninu.
Viltu vita nteira: tölvupóstur: www.sandgerdi.is
AKRANES
Sjávarlist; veiðar, vinnsla, samfélag 17. mars^l. júní
Menning og listir á Akranesi árið 2000 taka mið af því
að Akranes er fyrsti vísir að sjávarþorpi á íslandi. Lista-
menn vinna að verkum samkvæmt þemanu: Sjávarlist -
veiðar, vinnsla og samfélag. Verkum og viðburðum
verður valinn staður meðfram ströndum bæjarins, í
tengslum við útgerð og útræði á Akranesi í fortíð og nú-
tíð.
Utilistaverk verða fyrst og fremst unnin úr náttúmleg-
um efnum, s.s. torfi, rekaviði, gijóti, brotajámi o.fl. Við
hvert listaverk verður komið fyrir skilti sem segir frá því
hvemig listamaðurinn túlkar þemað.
Gerðir verða göngustígar á milli verkanna og leiðin