Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Side 61

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Side 61
ERLEND SAMSKIPTI af sýslum með ijárframlögum ffá alríkisstjóminni, einstökum fylkj- um og sveitarfélögum. Tekjur bæjarsjóðs Palmer Lake og ann- arra sveitarfélaga felast fyrst og fremst í fasteignaskatti og sölu- skatti. Söluskattur er misjafn effir fylkjum en þó held ég að hann sé hvergi hærri en 8-9 prósent. Gamla niðursuðuverksmiðjan í New Orleans fær brátt nýtt hlutverk. Hlýrrí áfangastaöur Við kvöddum vetrarríkið Colorado og héldum suður á bóg- inn til New Orleans í Louisiana- fylki. Borgin er þekktust fyrir ár- lega kjötkveðjuhátíð í febrúar en þá flykkist þangað fólk hvaðanæva að úr heiminum til að skemmta sér. Við vorum hálfum mánuði of snemma á ferðinni og fengum þvi ekki að upplifa stemn- inguna en mér var þó engin eftir- sjá í því enda margt annað fróðlegt að sjá í borginni. I þessum siðasta hluta ferðarinnar var ætlunin að skoða betur fyrirkomulag sem einkennir svo mjög bandarískt samfélag en það er aðkoma frjálsra félaga- samtaka og fyrirtækja í einkarekstri að ýmsum verkefn- um sem víða annars staðar eru á könnu hins opinbera. Regnhlífarsamtök til hjálpar heimilis- lausum New Orleans er ekki rík borg og í raun er Louisiana eitt af fátækari fylkjum Bandaríkjanna. Talið er að um fimm þúsund manns séu heimilislaus í borginni og ár- lega flyst þangað fjöldi fólks sem á í engin hús að venda. Um árabil störfúðu ólík félagasamtök, trúarleg sem önn- ur, að því að bæta hag þessa fólks til lengri eða skemmri tíma, ýmist í samvinnu við borgaryfírvöld eða á eigin forsendum. Öll eyddu félögin hvert um sig dýrmætum tíma og kröftum í að sækja um opinbera styrki og íjár- ffamlög ffá einkaaðilum. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að sameina krafta fé- laganna með stofnun heildarsamtaka sem vinna ein- göngu að því að safna fé fýrir aðildarfélögin svo þau geti einbeitt sér að sjálfu hjálparstarfmu. Arangurinn hefúr ekki látið á sér standa og nú eru fjárveitingar til þessarar starfsemi margfaldar á við það sem áður var og þjónust- an að sama skapi betri. í reynd hefúr tekist svo vel til í New Orleans að þetta fyrirkomulag hefur orðið fyrir- mynd að ámóta starfí í öðrum borgum Bandaríkjanna. Bómullarverksmiðjan í nýjum og glæsilegum buningi. Þaö finnast víöa gömul hús Annað gott dæmi um samstarf opinberra aðila og einkageirans er uppgerð gamalla og úr sér genginna fast- eigna í New Orleans og fengum við að sjá nokkrar skemmtilegar útfærslur af slíku. I gamalgrónu íbúðahverfi skammt frá miðbænum hafa

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.