Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Síða 65
TÆKNIMAL
EKKO-jarðsjáin í sleðauppsetningu, í þessu tilviki við maelingu á Grafarholtsgolfvelli.
Aftan við sleðann er veghjól sem stýrir fjarlægð milli mælipunkta.
og flýtir þessi uppsetning verulega
fyrir við mælinguna.
NOGGIN 250 er einfaldara og
ódýrara tæki, sem hentar vel þar
sem verið er að skoða jarðlög, lagn-
ir o.fl. á litlu dýpi og niðurstöður
þurfa að liggja fyrir strax. Línu-
hönnun stefnir að því að halda stutt
námskeið í notkun NOGGIN-jarð-
sjár og gefa í kjölfarið viðkomandi
kost á því að leigja tækið og nota
það án aðstoðar.
Jarðsjá nýtist til margvíslegra
nota. Sem dæmi um verkefni þar
sem hún getur hentað vel má nefna:
• Afmörkun eða leit að fomleifúm.
• Undirbúning gatna og uinferðar-
mannvirkja.
• Leit að ffárennslislögnum.
• Magntöku efnis í malamámum.
• Mælingar á dýpt og setlögum í
stöðuvötnum.
• Skipulagningu byggðar og íbúða-
hverfa.
• Sprunguleit í bergi.
• Undirbúning byggingarlanda og
lóða.
Jarökönnun
Markmið jarðkönnunar er að gera
grein fyrir jarðfræðilegum aðstæð-
um og lýsa jarðtæknilegum eigin-
leikum jarðlaga vegna mannvirkja-
gerðar, vegna undirbúnings skipu-
lagsáætlana o.s.frv.
Línuhönnun hefur markvisst
byggt upp þekkingu og tækjabúnað
til að geta sinnt jarðkönnun. Dæmi-
gerð jarðkönnun byrjar með því að
unnið er úr fyrirliggjandi upplýsing-
um og farið er á staðinn ef kostur er
og aðstæður metnar. Þegar kemur
að rannsóknarvinnu er gott að
blanda saman óbeinum aðferðum
eins og jarðsjármælingu og fleiri
eða færri beinum mælingum eins og
t.d. gryQugrefti, slagborun, snún-
ings-þrýstiborun og kjarnaborun.
Tekin em þau sýni sem nauðsynleg
em til að geta sagt til um tæknilega
eiginleika. Þegar á stofúna er komið
em sýnin greind og unnið úr niður-
stöðum borana, jarðsjármælinga
o.s.frv. Línuhönnun notar sérstakt
jarðlagaforrit til að setja allar niður-
stöður saman og meta jarðfræðileg-
ar og jarðtæknilegar aðstæður í þrí-
vídd. Niðurstöður með þversniðum,
langsniðum, tæknilegum eiginleik-
um, magntölum o.s.frv. em að lok-
um settar fram á minnisblaði eða í
skýrslu og einnig skilað á tölvutæku
formi í hendur hönnuða ef þess er
óskað.
Undanfarin ár hefúr jarðsjá gegnt
vaxandi hlutverki í jarðkönnunum
Línuhönnunar, ekki síst eftir að
búnaður var aukinn og bættur árið
1998. Jarðsjármælingar em fljótleg-
ar, raska ekki jarðvegi og gefa sam-
fellt snið eftir mælileiðinni. Hentar
þvi vel að jarðsjármæla á undan eða
eftir beinu mælingunum, sem eru
punktaathuganir og ekki samfelldar.
Könnun fornleifa
Markmið við fomleifarannsóknir
em margþætt eins og m.a. má ráða
af reglugerð um þjóðminjavörslu,
Langsnið af vegstæði Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð unnið í STRATA3-jarðlagaforriti Línuhönnunar. Sniðið byggist á niðurstöðum
sem fengnar voru með beinum og óbeinum rannsóknaraðferðum, m.a. jarðsjá.