Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Síða 13

Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Síða 13
FRÆÐSLUMÁL Viðbyggingin við grunnskólann. Ljósm. Þorsteinn Geirharðsson. Nýbygging grunnskóla á Vopnafirði Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri Laugardaginn 28. október 2000 var nýbygging Vopnafjarðarskóla, tónlistarskóla Vopnafjarðar og bókasaíns Vopnafjarðar vígð. Um er að ræða húsnæði, sem alls er 1.224 nf að stærð, til viðbótar eldra skóla- húsnæði grunnskólans, sem fyrir var, alls um 800 m2. Með húsnæði þessu verður Vopnafjarðarskóli einsetinn, öll kennsla fer fram undir sama þaki og vinnuaðstaða kennara til fyrirmyndar. Með tilkomu þessa mannvirkis er og mögulegt að rýma eldra húsnæði tónlistarskólans, bókasafnsins og stofúr, sem notaðar voru til kennslu fyrir grunnskólann úti í bæ, alls um það bil 300 m2. í skólanum er jafnframt fúllkomið mötuneyti, þar sem allir nemendur skólanna ásamt starfsfólki eiga kost á að borða saman. í mötuneytinu er einnig framleiddur matur fyrir leikskóla bæjarins. I raun má því segja að húsnæð- ið nýtist mjög vel til að þjóna öllum aldurshópum í bæn- um, allt frá ungbömum í leikskólanum, grunnskólanem- endum í skyldunámi, nemendum á öllum aldri í tónnámi og síðast en ekki síst öllum íbúum sveitarfélagsins er sækja mjög mikið bókasafnið, sem nú hefúr verið sam- einað skólabókasafúinu. Ennffemur var eldra kennsluhúsnæði skólans allt end- umýjað og þar gerðar fúllkomnar sérkennslustofúr, svo sem fyrir matreiðslu, smíðar og hannyrðir. Heildarkostnaður við framkvæmdina og kaup á búnaði er um 180 milljónir kr. og er þá innifalin lagfæring á eldra húsnæði. Framkvæmdir hófúst í maí 1998 og lauk fýrir upphaf skólatíma sl. haust, og var það í samræmi við upphaflegar áætlanir. Arkitekt hússins er Þorsteinn Geirharðsson FAÍ, ATH vinnustofú, Tryggvagötu 16 í Reykjavík, Vífill Oddsson verkfræðingur VFÍ, Teiknistofúnni Óðinstorgi hf. sá um burðarþolshönnun og annaðist eftirlit með framkvæmd- inni. Rafn Guðmundsson tæknifræðingur TFÍ hannaði lagnir og Tómas Kaaber rafiðnfræðingur raflagnir. Tré- smiðjan Mælifell ehf. á Vopnafirði var aðalverktaki og vann verkið af miklum sóma. 9

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.