Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Blaðsíða 52
TÆKNIMÁL
Gáð til veðurs og að þessu
sinni á Veraldarvefnum!
Þorsteinn S. Þorsteinsson vélfrœðingur
Inngangur
Hið almenna orðatiltæki aó gá til veðurs
hefur verið viðhafl á Islandi írá fomu fari og
af öllum þeim sem höfðu undir veðrið að
sækja, bæði til sjós og lands. Þetta viðgengst
enn og í raun ekkert að undra í landi sem
liggur lengst norður i Atlantshafi, umlukið
sjó á alla vegu og á aðalbraut mikilla veður-
kerfa ffá vestri til austurs.
Til voru veðurglöggir menn sem lásu út úr
litbrigðum og skýjahreyfingu hvers væri að
vænta í næsta nágrenni við heimabyggð. Þessir veður-
glöggu menn finnast enn og margir hverjir hinir bestu
veðurspámenn og nokkuð skemmtilegir.
ísland er eitt þeirra ríkja sem hafa til umráða þróaða
veðurspáþjónustu sem hið opinbera rekur og hefúr gegnt
hlutverki sínu með góðum skilum i áratugi. Þar er um að
ræða veðurfregnir og veðurspár ásamt ýmsu öðru til
uppfyllingar. Dreifmg þessara upplýsinga hefur verið
með miklum ágætum, um útvarpið og ljósvakamiðlana.
Nútíminn
Með nútíma fjarskipta- og framsetningartækni, upp-
lýsingatækninni, er á hinn bóginn bæði mögulegt og
nauðsynlegt að ganga til verks við nýtingu þeirra tæki-
færa sem tiltæk eru og bjóðast í næstu framtíð. Enn er
viðfangsefnið að „gá til veðurs“, en núna með tölvunni
og þróuðum hug- og reiknibúnaði ásamt nýjurn aðferð-
um við ffamsetningu.
Veðurþulan og veðurþulurinn með sina tvíræðu fram-
setningu og handunnu myndaflóru er horfin og í staðinn
kornin tölva með fastmótað fonn og framsetningu sem
byggir á uppsafnaðri „reynslu" í þróuðum reiknilíkön-
um sem nýtt eru til hins ýtrasta.
Hugsanlegt er þó að einhverjir sjái eftir því eldra eins
og off er. Framtíðin liggur í nýtingu tölvunnar og ffam-
setningu á Veraldarvefnum.
A öld upplýsinga með tilheyrandi vali og möguleik-
um er til þess ætlast að hægt sé að nálgast upplýsingam-
ar þegar þörf krefúr og dreifa þeim þar sem þær eiga
við. Þetta er ótvíræður kostur og því er það að hátækni-
fyrirtækið Halo ehf., haf- og lofkhjúpsfræðistofa, setur
fram hugmyndir og lausnir.
Halo og veðurvefurinn
„theyr internet weather“
Halo ehf. er fyrirtæki sem starfað hefúr ffá
árinu 1995 við þróun og gerð veðurspáa sem
byggjast á notkun spálíkana og aðgengi veð-
urspáupplýsinga eingöngu á Veraldarvefnum
eða Intemetinu.
Hönnun hugbúnaðarins og framsetningar-
innar hefur tekið um fimm ár og hafa unnið
við það eðlisfræðingar, stærðfræðingar og
kerfisffæðingar ásamt aðstoðarmönnum og er
hugbúnaðurinn búinn að vera aðgengilegur á Netinu í
um þijú ár.
Reynslan er mjög góð og afspurnin sérstaklega
ánægjuleg og því til sönnunar em ótal margar jákvæðar
kveðjur sem okkur hafa fallið i skaut ffá þakklátum not-
endum á þessum tíma. I þeim hópi em landkrabbar sem
og sjómenn, flugmenn, langferðabílstjórar, útgerðar-
stjóri, skipstjórar, trillukarlar, flugumferðarstjórar og
margir fleiri. Frá íslandi, Færeyjum, Noregi, Bret-
landseyjum, Frakklandi, Ítalíu, Norðurlöndunum og víð-
ar. Nákvæmninni er við bmgðið, segja menn og áreiðan-
leikinn eftir því.
Spákerfið er algjörlega sjálfVirkt og aflar gagna tvisvar
á sólarhring og reiknar út spámar og skilar þeim út á
Vefinn, einnig tvisvar á sólarhring.
Fmmgögnin sem unnið er með em vistuð hjá almenn-
um upplýsingaveitum sem hafa opið óheft aðgengi fyrir
þá sem vilja nýta sér þau.
Reiknilíkönin em hönnuð og gerð af vísindamönnum
og sérffæðingum i þeirri grein og gagnavinnslan fer fram
á venjulegum PC-tölvum, þ.e. tölvum sem fást á alrnenn-
um tölvumarkaði.
Allt verkferlið ffá móttöku gagna yfir í útreikning og
siðan framsetningu á Vefnum er samfellt og tekur um
þrjár klukkustundir, tvisvar á sólarhring. Kortafjöldinn
sem notandinn hefur úr að velja er um 15.000 talsins
þegar allt er tilbúið.
Af því sem ég hef hér greint frá mætti ætla að þetta
verkefni væri ekki ýkja flókið né yfirgripsmikið, en sú er
nú reyndar ekki raunin. Allt það sem lýtur að þessari
hugbúnaðarsmíð er flókið og hefúr krafist langrar og yf-
irgripsmikillar þróunar, sérstakrar vandvirkni og góðrar
48