Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Blaðsíða 36
LEIKSKÓLAR
Mat á leikskólastarfi
ECERS-gæðamatskvarðinn kominn út á fslandi
Gerður Guðmundsdóttir, leikskólaráðgjafi í Kópavogi, og
Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi í Kópavogi
Nýlega kom út í íslenskri þýðingu
matskvarði sem ætlaður er til að
meta leikskólastarf.
Samkvæmt reglugerð fyrir leik-
skóla frá 1994 skal hver leikskóli
móta sér aðferðir við að meta starf
sitt. Útgáfa ECERS-kvarðans bætir
því þama úr brýnni þörf ívrir einfalt
og áhrifaríkt matstæki. ECERS-
kvarðinn tekur til allra þátta starfs-
ins með bömunum í leikskólanum.
Auknar kröfur um gæöi og
gæöamat - nýjar rann-
sóknarniöurstööur um
þróun heilans
Með aukinni þekkingu á mikil-
vægi fyrstu æviáranna og ekki síst
með tilkomu nýrra rannsóknamiður-
staðna um hvemig heili mannsins
þróast, eru gerðar sífellt auknar
kröfur um gæðastarf í leikskólum.
Samkvæmt þessum nýju niðurstöð-
um úr heilarannsóknum mótast heili
mannsins að mestu leyti fyrstu ævi-
mánuðina og æviárin og atlæti og
örvun á leikskólaaldri hefur úrslita-
þýðingu fyrir uppbyggingu heilans
og þar með getu og hæfhi einstakl-
ingsins til að læra og starfa það sem
eftir er ævinnar. Það hefur einnig
komið i ljós að streita og kvíði hefur
mjög skaðleg áhrif á heila barna.
Gæði leikskólastarfs eru því enn
mikilvægari en áður var talið.
ECERS-gæðamatskvarðinn var
þróaður í Bandaríkjunum og hefur
verið þýddur á fjölmörg tungumál.
Má fullyrða að hann sé meðal mest
notuðu gæðamatskvarða í heirnin-
um. Höfundar hans eru Thelma
Harms og Richard M. Clifford.
Þýðendur íslensku útgáfunnar og
útgefendur eru Gerður Guðmunds-
dóttir leikskólaráðgjafi og Sesselja
Hauksdóttir leikskólafulltrúi sem
báðar starfa á leikskólaskrifstofu
Kópavogs.
Þýðendur hafa ekki aðeins þýtt
kvarðann heldur staðfært hann og
aðlagað hann íslenskum aðstæðum,
íslenskum lögum, reglugerð og að-
alnámsskrá og íslensku leikskóla-
starfi almennt.
ECERS-kvarðinn er einkum ætl-
aður fyrir sjálfsmat leikskóla, þ.e.
fyrir leikskólakennara til að meta
starf sitt og aðstæður í leikskólan-
um. En hann getur einnig nýst við
ytra mat, þ.e. þegar utanaðkomandi
aðili metur starfið. Þá getur hann
verið gott tæki fyrir nemendur í
leikskólakennaranámi við að athuga
aðstæður og læra að meta og skoða
leikskólastarf.
ECERS-kvarðinn er ætlaður til að
meta leikskólastarf fyrir 3-6 ára
böm en það er mat þýðenda að hann
nýtist einnig við mat á starfi fyrir
tveggja ára böm.
1 uppbyggingu kvarðans er geng-
ið út ffá eftirfarandi grunnatriðum:
• Hvað þarf hvert bam i leikskóla
til þess að þroskast andlega, fé-
lagslega, tilfmningalega og vits-
munalega?
• Hvernig skipuleggja leikskóla-
kennarar umhverfið þannig að það
mæti sem best þörfum bamanna?
I ECERS-kvarðanum eru teknir
fyrir eftirfarandi þættir: Rými og
búnaður, umönnun og daglegt líf,
mál- og hugtakanám, leikur/við-
fangsefni, samskipti/skipulag og
starfsmenn og foreldrar. Kvarðinn er
mjög einfaldur í notkun og tekur
skamman tíma að gera heildarmatið
sjálft. Þegar úrvinnslu á matinu er
lokið er hægt að nota niðurstöður til
að: sjá hvernig starfið er, endur-
skipuleggja það, fá staðfestingu á
vel unnu starfi, veita starfsmönnum
ffæðslu, greina hvað þarf að bæta og
skapa umræður i verknámi. Megin-
tilgangurinn er þó alltaf að bæta
starfið.
Kvarðinn var prófaður i nokkrum
leikskólum meðan á þýðingarvinnu
stóð. Var unnið þróunarverkefni
með styrk ffá menntamálaráðuneyti
í einum leikskóla til að kanna hvort
kvarðinn væri gott tæki til að styðja
við og umbótastarf. Niðurstöður
þessa verkefnis vom mjög góðar.
A síðustu mánuðum hefúr kvarð-
inn verið notaður í mörgum leik-
skólum og er það álit þeirra sem tek-
ið hafa þátt í matsferlinu að um
mjög gott og skilvirkt tæki sé að
ræða.
Það er ósk þýðenda og útgefenda
að kvarðinn nýtist vel til að meta
gæði leikskólastarfs á íslandi og til
að auka þau.
32