Sveitarstjórnarmál - 01.02.2001, Side 66
BYGGÐAMÁL
fiutningunum til höfuðborgarsvæð-
isins og að móta þyrfti tillögur um
aðgerðir til að spoma við þeirri þró-
un sem verið hefði í þeim málum.
Með því að koma á fót nefnd um
byggðamál með sveitarstjórnar-
mönnum af höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni vill stjórn sam-
bandsins ffeista þess að ná fram víð-
tækri samstöðu sveitarstjórnar-
manna um aðgerðir og flutning til-
lagna sem miði að því að draga úr
fólksflutningunum til höfuðborgar-
svæðisins.
Hjá sambandinu liggja fyrir áhrif
búferlaflutninganna á fjárhag ein-
stakra sveitarfélaga og Byggða-
stofnun á tiltækar margvíslegar upp-
lýsingar sem að gagni geta komið í
vinnu nefndarinnar. Einnig liggja
víða fyrir hugmyndir og tillögur um
aðgerðir sem miða að því að draga
úr búferlaflutningunum eða snúa
við þeirri þróun sem verið hefur.
Vinna nefndarinnar ætti því ekki að
þurfa að taka mjög langan tíma og
stjómin miðar að því að hún leggi
fram tillögur sínar eigi síðar en 1.
mars 2001.
Forsenda þess að sambandið geti
lagt fram og fylgt eftir tillögum um
aðgerðir í byggðamálum er að um
þær sé almenn sátt meðal sveitar-
stjómarmanna á höfuðborgarsvæð-
inu og landsbyggðinni. Náist sú
samstaða ekki, en á það reynir í
nefndinni, er í raun afar erfitt fyrir
sambandið sem málsvara allra sveit-
arfélaga að leggja fram og fylgja
eftir tillögum um aðgerðir í byggða-
málum. Ahrif tillagna um aðgerðir í
byggðamálum, sem sveitarstjómar-
menn væru sammála um og fylgt
væri eftir af sambandinu, gætu á
hinn bóginn vakið athygli og um-
ræðu og hugsanlega orðið til þess að
draga úr búferlaflutningunum í
framtíðinni.
HÚSNÆÐISMÁL
Nefnd um félagsleg
húsnæðismál
sveitarfélaga
Félagsmálaráðherra, Páll Péturs-
son, hefur í samráði við sambandið
sett á stofn nefnd sem á að fjalla um
félagsleg húsnæðismál sveitarfé-
laga. Nefndin á m.a. að fylgja eftir
tillögum nefndar um leigumarkað
og leiguhúsnæði sem skipuð var í
ágúst 1998 og lauk störfum í apríl
2000, en megintillaga nefndarinnar
var að könnuð yrði hagkvæmni þess
að horfið verði frá niðurgreiðslu
lána vegna leiguhúsnæðis og frá því
að sveitarfélög eigi og reki leigu-
húsnæði í eigin nafni. Jafnframt á
nefndin að fylgjast með ffamkvæmd
laga nr. 44/1998 um húsnæðismál
og samræma aðgerðir ríkis og sveit-
arfélaga að því er snertir félagslegt
húsnæði.
Nefndinni er nánar ætlað:
• Að útfæra tillögur nefndar um
leigumarkað og leiguhúsnæði er
varða breytingar á aðstoð hins op-
inbera vegna félagslegra leigu-
íbúða.
• Að gera tillögur um breytt hlut-
verk og fjármögnun Varasjóðs
viðbótarlána.
• Að hrinda í framkvæmd tillögum
sem unnar hafa verið á vegum fé-
lagsmálaráðuneytisins um lausn á
vanda sveitarfélaga vegna inn-
lausnaríbúða sem ekki er mögu-
legt að selja.
• Að kanna nauðsyn þess að endur-
skoða ákvæði laga um kaup-
skyldu og forkaupsrétt.
• Að fjalla um samstarf Varasjóðs
viðbótarlána og Ibúðalánasjóðs
og leysa úr ágreiningi sem upp
kann að koma vegna fram-
kvæmdar laga og reglugerða um
Varasjóðinn, sbr. ákvæði X. kafla
laga um húsnæðismál.
Jafhframt er henni falið að fylgj-
ast með framkvæmd laga nr.
44/1998 og gera tillögur um breyt-
ingar ef þurfa þykir.
í nefhdinni eru Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri í Isafjarðarbæ,
Gunnlaugur A. Júlíusson, deildar-
stjóri hagdeildar sambandsins, Guð-
mundur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Ibúðalánasjóðs, Hallgrímur
Guðmundsson, stjómsýsluffæðingur
í fjármálaráðuneytinu, Hermann
Sæmundsson, deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu, og Ingi Valur Jó-
hannsson, deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, sem er formaður.
Óskar Páll Óskarsson, lögfræð-
ingur í félagsmálaráðuneytinu,
starfar með nefhdinni.
Nefndin á að skila tillögum fyrir
1. júní nk.
Niðurstöður nefndarinnar um
leigumarkað og leiguhúsnæði,
greinargerð hennar og tillögur, er að
finna á vefsíðu sambandsins,
www.samband.is og félagsmála-
ráðuneytisins, http ://brunnur. stjr. is/
interpro/fel/fel.nsf/pages/forsida.
nCZJF^EDI___________IRDRKR
RANGÁRVÖLLUM • PÓSTHÓLF 90 ■ 602 AKUREYRI ■ SÍMI 460 1300 ■ FAX 460 1301
NETFANG nordurorka@akureyrl.is • KT. 550978-0169 ■ VSKNR. 9997
62