Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Blaðsíða 5
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 5
frá ritstjórUM
Í þessu hefti Uppeldis og menntunar eru þrjár ritrýndar greinar, fjórar viðhorfsgreinar
og þrír ritdómar. Ritrýndu greinarnar fjalla um ólík efni á sviði menntavísinda: viðhorf
kennaranema og framhaldsskólanema til kennaranáms, viðhorf nemenda í alþjóðlegu
námi í menntunarfræði við Háskóla Íslands til námsins og árangur íslenskra grunn-
skólabarna í skriftarnámi. Viðhorfsgreinarnar eru um tómstunda- og félagsmálafræði-
menntun og ritaðar af kennurum námsbrautarinnar í Háskóla Íslands.
Auk birtingar á vefnum timarit.is er ritið nú birt í pdf-formi í Skemmunni, eldri
hefti frá 2005–2009 og stakar greinar frá og með 2010. Birtingartöfin er um það bil ár.
Á vef tímaritsins eru svo birt án tafar ágrip greina, bæði á íslensku og ensku. Sótt hefur
verið um að tímaritið verði tekin inn í ISI-gagnagrunninn og er beðið niðurstöðu.
útgáfa tímarits sem uppfyllir alþjóðlega viðurkenndar kröfur um ritrýni er mikil-
væg fyrir menntavísindin. Engin grein er birt í Uppeldi og menntun sem ritrýnd grein
nema hún hafi verið send til a.m.k. tveggja sérfróðra ritrýna, auk ritstjóra og a.m.k.
eins ritnefndarfulltrúa, á einhverju stigi. Flestar greinar fara tvisvar í rýni og sumar
oftar áður en þær eru birtar, og á síðustu fjórum árum er höfnunarhlutfallið 36,2%.
Þá eru ekki talin með þau handrit sem aldrei voru send til ritrýna vegna þess að þau
annaðhvort hentuðu ekki tímaritinu eða fyrirsjáanlegt var að þau þættu ekki nógu
góð. Höfnunarhlutfallið á að tryggja að birtar greinar standist vissar gæðakröfur sem
tímarit með mildara ritrýningarferli geta síður. Eftir að ritrýni er lokið ritstýrir ritstjóri
greinum, málfar er leiðrétt af sérfróðum málfarsyfirlesurum og loks eru greinar búnar
undir umbrot með því að farið er yfir handritin enn á ný, og sérstaklega yfir allar til-
vísanir og heimildaskráningu.
Ritstjórar þakka öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóg við útgáfu og dreifingu
þessa heftis.